Fara í efni
Fréttir

Snjóflóð í Dalsmynni, þyrla LHG á leið norður

Þyrla Landhelgisgæslunnar við Sjúkrahúsið á Akureyri. Mynd úr safni.

Snjóflóð féll í Dalsmynni nyrst í Fnjóskadal í dag, úr Þveráröxl eftir því sem næst verður komist. Ekki fæst uppgefið hvort einhver lenti í flóðinu en altjent var óskað eftir því að björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar kæmi norður. Lögregla og björgunarsveitir frá Akureyri og Grenivík voru einnig kallaðar út. Snjó hefur kyngt niður á Norðurlandi síðasta sólarhringinn.

Ekki fást frekar upplýsingar að svo stöddu.