Fara í efni
Fréttir

Snekkju bannað að leggjast að bryggju

Snekkjan La Datcha á Pollinum í dag. Mynd: Valgeir Bergmann

Erlendri snekkju var meinað að leggjast að bryggju á Akureyri í dag, laugardag, á grundvelli þvingunaraðgerða gegn Rússlandi sem íslensk stjórnvöld framfylgja, vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Ríkisútvarpið greinir frá þessu í kvöld.

Í svari Landhelgisgæslunnar eftir fyrirspurn fréttastofu RÚV kemur fram að ákvörðunin um að snekkjunni var „meinuð hafnarkoma“ eins og það er kallað, hafi byggt á þeim hluta þvingunaraðgerðanna sem kveður á um að skip sem siglir undir rússneskum fána og hefur skipt um fánaríki eftir 24. febrúar 2022 er óheimill aðgangur að höfn í ríki á EES-svæðinu.

Snekkjan á Pollinum í dag. Mynd: Þorgeir Baldursson

Í ljós hafi komið að skipið sigldi undir rússneskum fána frá því í apríl 2021 fram í september 2022 og „á þeim grundvelli tilkynnti Landhelgisgæsla Íslands skipstjóra snekkjunnar að henni væri meinuð hafnarkoma á Akureyri,“ segir í frétt RÚV. „Landhelgisgæslan og utanríkisráðuneytið hafa verið í samskiptum vegna málsins og er það enn í vinnslu. Snekkjan er enn staðsett í Eyjafirði og er varðskipið Freyja einnig staðsett þar“

Snekkjan vakti athygli margra á Pollinum í morgun. Vísir greindi frá því að hún væri í eigu fyrrverandi milljarðamærings frá Rússlandi, Olegs Tinkovs, stofnanda netbankans Tinkoff.