Fara í efni
Fréttir

Ský, ský, burt með þig!

Því miður eru ekki líkur á heiðum himni síðdegis eins og á þessari mynd, en engu að síður getur verið áhugavert að fylgjast með atferli fugla og annarra dýra þegar dimmir í sólmyrkva. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Samkvæmt veðurspá og hugleiðingum veðurfræðigs í morgunsárið eru ekki miklar líkur á draumaskýjafari fyrir sólmyrkvaaðdáendur síðdegis, því miður. Hér norðanlands verður þó þurrt lengst af fram eftir degi, en litlar líkur á að skýjahulan muni brotna. Ef það gerist verður það helst á norðvestanverðu landinu.

  • Veðurspá Veðurstofu Íslands fyrir allt landið í dag, birt á sjötta tímanum í morgun:
    Austlæg átt 5-13 m/sek., hvassast við suðurströndina. Rigning eða skúrir, en úrkomuminna á norðanverðu landinu fram eftir degi. Hiti 10 til 20 stig, svalast við sjóinn norðan- og austantil.
  • Hugleiðingar veðurfræðings með veðurspánni:
    Í dag verður austlæg átt 5-13 m/sek., hvassast við suðurströndina. Rigning eða skúrir víða um land, en lengst af þurrt norðanlands fram eftir degi. Spár gera ráð fyrir skýjuðu veðri á vestanverðu landinu seint í dag. Líkur á að skýjuhulan muni brotna eru eins og áður frekar litlar, en ef það gerist þá er það líklegast á norðvestanverðu landinu.
    Lægir og dregur smám saman úr vætu í kvöld. Hiti 8 til 20 stig, svalast við sjóinn norðan- og austantil.

Hversu vel sólmyrkvinn sést fer eftir skýjafarinu síðdegis, en hvernig sem það verður mun þó alltaf dimma. Veðurstofa Íslands hefur sett upp sérstaka vefsíðu þar sem birt verður sólmyrkvaspá og hægt verður að fylgjast með nýjustu veðurspám þar.

Hvernig sem veður og skýjafar verður er vert að minna á notkun sérstakra hlífðargleraugna ef fólk nær að horfa á sólina og deildarmyrkvann einhvers staðar. Fyrir fólk eins og þann sem þetta ritar, sem framkvæmir yfirleitt á síðustu stundu, gæti reynst erfitt að nálgast sólmyrkvagleraugu í dag. Þau voru í boði hjá ýmsum verslunum og fyrirtækjum, en eru víða uppseld. Ábendingar um hvar enn er hægt að nálgast sólmyrkvagleraugu eru því vel þegnar.

Akureyri.net fjallaði um sólmyrkvann frá ýmsum hliðum fyrr í vikunni - sjá hér.