Fara í efni
Fréttir

Skotveiði bönnuð á skíðasvæðinu

Myndin sýnir afmörkun skíðasvæðisins þar sem skotveiði er óheimil.

Í tilkynningu á vef skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli er vakin athygli á að öll skotveiði er óheimil á skíðasvæðinu. Jafnframt er bent á að starfsfólk Hlíðarfjalls vinnur nú að ýmsum verkum utanhúss og því mikill umgangur fólks víða í fjallinu.

Í tilkynningunni segir meðal annars:

Svæðið er útivistarparadís Akureyringa og gesta bæjarins allan ársins hring. Þarna eru vinsælar gönguleiðir um holt og hæðir þar sem fjölskyldufólk er gjarnan á ferðinni jafnvel þótt skíðalyfturnar hafi ekki verið ræstar. Því er meðferð skotvopna á svæðinu alls ekki við hæfi. Skotveiðimenn eru vinsamlegast beðnir að virða þetta.