Fara í efni
Fréttir

Skora á ráðherra vegna þjónustu við fatlaða

Ljósmynd: María Helena Tryggvadóttir

Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) skora á ríkisvaldið leggi fram aukið fé vegna þjónustu sveitarfélaga við fatlaða. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á aukaþingi SSNE á dögunum.

„Aukaþing SSNE haldið í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit 23. september 2022 leggur þunga áherslu á að ríkið leggi til aukið fjármagn til að standa undir útgjöldum sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk og til að mæta sívaxandi kröfum um hærra þjónustustig,“ segir í ályktuninni.

„Aukaþing SSNE skorar á ráðherra að hraða vinnu við mótun tillagna um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu fatlaðs fólks þannig að niðurstöður liggi fyrir eins fljótt og auðið er, eða þannig að sveitarstjórnir geti gert ráð fyrir breytingum við gerð fjárhagsáætlana ársins 2023. Jafnframt leggur aukaþing SSNE ríka áherslu á að Alþingi tryggi aukið fjármagn til málaflokksins á árinu 2022 til að stöðva langvarandi halla á rekstri hans, en því miður er ekki hægt að sjá vilja til þess endurspeglast í fjárlagafrumvarpi því sem fjármálaráðherra lagði nýverið fram.“