Skoða möguleika á lækkun fasteignaskatts

Bæjarráð samþykkti í liðinni viku að fela sviðsstjóra fjársýslusviðs að reikna út mismunandi sviðsmyndir við mögulega lækkun á fasteignaskattsprósentu. Umfjölllun bæjarráðs kom til vegna áskorunar Félags atvinnurekenda til sveitarfélaga vegna fasteignaskatts. Bæjarráð vísaði erindinu til vinnu við fjárhagsáætlunargerð fyrir árin 2026-2029.
Í erindi Ólafs Stephensen, fyrir hönd Félags atvinnurekenda, er vísað til fasteignamats fyrir árið 2026 sem birt var í lok maí. „Fasteignamat hækkar um 9,2% milli ára. Mat atvinnuhúsnæðis hækkar um 4,8%. Á höfuðborgarsvæðinu nemur hækkunin 3,8% en á landsbyggðinni um 9,1%,“ segir í bréfinu.
Helmingshækkun á áratug
Bent er á að álagður fasteignaskattur hafi hækkað um 50% á einum áratug, þrátt fyrir lækkanir sumra sveitarfélaga á álagningarprósentu á tímabilinu. Álagður fasteignaskattur í fyrra var 36,6 milljarðar króna. „Félag atvinnurekenda telur því fulla ástæðu til að sveitarfélögin skoði að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði til að mæta hækkunum fasteignamatsins.
Nýbyggingar við Þursaholt á Akureyri. Mynd: Haraldur Ingólfsson.
Félagið hvetur jafnframt til uppbyggilegs samtals sveitarfélaganna og ríkisvaldsins um breytt kerfi skattlagningar fasteigna með minni sveiflur og meiri fyrirsjáanleika að markmiði,“ segir í bréfi félagsins. Þar er jafnframt vísað til skýrslu starfshóps sem skipaður var fulltrúum FA, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, Húseigendafélagsins og Landssambands eldri borgara sem gefin var út 2023. Félagið vekur sérstaka athygli á ábendingum hópsins um meðalhófsþak á prósentubreytingu fasteignaskatta milli ára.
Fateignamat hækkað um 60% frá 2022
Hilda Jana Gísladóttir (S) og Sunna Hlín Jóhannesdóttir (B) lögðu báðar fram bókanir á fundi bæjarráðs þar sem þær hvöttu til lækkunar á álagningarprósentu fasteignaskatts. Í bókun Sunnu Hlínar kemur fram að fasteignamat á Akureyri hafi hækkað um 60% frá árinu 2022 og hækkunin fyrir árið 2026 sé 10,6% fyrir íbúðarhúsnæði og 7,9% fyrir atvinnuhúsnæði. Álagningarprósentan hafi þó aðeins einu sinni verið lækkuð mjög lítillega. Íbúar og fyrirtæki hafi því tekið á sig miklar skattahækkanir í gegnum fasteignaskattinn.
Bókun Hildu Jönu Gísladóttur:
Líkt og ég hef áður bent á er tímabært að lækka fasteignaskatta á íbúa og atvinnulíf á Akureyrar. Ekki er ástæða til þess að bíða eftir fjárhagsáætlunargerð næsta árs til þess að taka af skarið og lækka þá skatta, t.a.m. um 1-2 punkta. Í kjölfarið ætti að fara í markvissa greiningarvinnu til að undirbyggja ákvarðanatöku fyrir fjárhagsáætlun næsta árs.
Bókun Sunnu Hlínar Jóhannesdóttur:
Fasteignamat á Akureyri hefur hækkað verulega frá árinu 2022, eða um 60%. Fyrir árið 2026 er hækkunin 10,6% fyrir íbúðarhúsnæði og 7,9% fyrir atvinnuhúsnæði. Á þessu kjörtímabili hefur álagningarprósentan aðeins einu sinni verið lækkuð, mjög lítillega fyrir íbúðarhúsnæði og ekkert fyrir atvinnuhúsnæði. Þetta hefur orðið til þess að íbúar og fyrirtæki hafa tekið á sig miklar skattahækkanir í gegnum fasteignaskatt. Bæjarfulltrúar Framsóknar leggja til að prósentan verði lækkuð á bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði, þannig að tryggt sé að íbúar og fyrirtæki taki ekki á sig hærri eignaskatt milli ára.