Fara í efni
Fréttir

Skítugar brækur í sundi líka vandamál á Akureyri

Gísli Rúnar forstöðumaður sundlauga Akureyrar. Mynd: SNÆ

Nýtt tískufyrirbæri, sem felst í því að ungir menn mæti í sund í nærbuxum innan undir sundskýlunni, er vandamál í sundlaugum um allt land. Líka á Akureyri. Þetta kom fram í viðtali við forstöðumann sundlauga Akureyrar, Gísla Rúnar Gylfason, í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun.

Vísir.is fjallaði um málið fyrir helgi og ræddi þá við forstöðukonu í Grafarvogslaug sem sagði að um mikið vandamál sé að ræða. Gísli Rúnar staðfesti í samtali við Morgunútvarpið að þetta tískuæði væri líka í gangi á Akureyri og að starfsfólk sundlauga um land allt glímdi við þessa hvimleiðu tískubylgju. Sagði vandann hafa verið til staðar um nokkurt skeið. Samkvæmt Gísla virðist brókatískan fyrst og fremst bundin við unga pilta. Vandinn sé mest áberandi hjá aldurshópnum frá um 12–13 ára og upp í tvítugt. Ekki hefur orðið vart við sambærilegt vandamál í kvennaklefum.

„Þeir eru að fara í skítugri brók innan undir sundfötin í sund og þá er auðvitað til lítils að vera búinn að þvo sér öllum og svo skella sér í skítuga brók,“ sagði Gísli í Morgunútvarpinu. Í spjallinu kom einnig fram að margir hafi áður talið að hreinlætisvandamál í sundlaugum tengdust ferðamönnum eða menningarmun, en reynslan sýni annað. Nú eru þetta íslensk ungmenni sem eru að fylgja tískustraumum.

Hreinlætis- og umhverfismál

Gísli lagði áherslu á að málið snúist fyrst og fremst um hreinlæti og gæði laugarvatns. Hann sagði að því betur sem sundlaugargestir þvoi sér áður en þeir fara í laugina, þeim mun minna af klór þurfi að nota til að halda vatninu hreinu. Ef gestir fari í laugina óþvegnir eða í óhreinum fatnaði þurfi að auka klórnotkun. Að hans sögn er það ein af ástæðum þess að starfsfólk sundlauga fylgist grannt með því að reglur um sturtur og hreinlæti séu virtar.

Nikótínpúðar valda einnig áhyggjur

Í viðtalinu nefndi Gísli einnig að önnur þróun valdi starfsfólki sundlauga miklum áhyggjum, en það sé aukin notkun nikótínpúða. Sagði hann að starfsmenn væru í auknum mæli að finna notaða púða á sundlaugarsvæðum þar sem gestir skilja þá eftir á óviðeigandi stöðum. Samkvæmt Gísla eru dæmi um að púðum sé stungið undir bekki í gufuböðum eða þeim hent á salerni. Sagði hann þetta bæði vera hreinlætis- og öryggismál því það væri ekki gott að börn væru að pikka nikótínpúðana upp.