Fara í efni
Fréttir

Skerða þjónustu um tíma vegna manneklu

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Vegna veikinda starfsfólks og skorts á heilbrigðisstarfsmönnum þarf að grípa til tímabundinnar skerðingar á starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri og verður valkvæðum skurðaðgerðum fækkað tímabundið m.a. til þess að létta á álagi á gjörgæsludeild. Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk greinir frá þessu í pistli á vef stofnunarinnar í dag.

„Það er von okkar að þessi aðgerð hafi ekki langvarandi áhrif en búast má við því að biðlistar lengist lítillega og eru þeir skjólstæðingar sem þetta snertir beðnir um að sýna því skilning,“ segir forstjórinn.

Gengur illa að manna stöður

„Ástæðuna má m.a. rekja til óvenju mikilla veikinda starfsfólks síðustu vikur ásamt því að ekki hefur tekist að manna sem skyldi en þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar eftir heilbrigðisstarfsfólki gengur okkur illa að manna bæði fastar stöður og eins stöður til afleysinga og ljóst að skortur á heilbrigðisstarfsfólki hefur víðtæk áhrif. Þess má einnig geta að mikið hefur verið um innlagnir sjúklinga vegna hinna ýmsu öndunarfærasjúkdóma sem hafa verið í samfélaginu.“

Hildigunnur segir veikindi starfsfólks og fjölgun innlagna hafa áhrif á starfsemi allra deilda sjúkrahússins „en við viljum þakka starfsfólki okkar sem með þrautseigju og dugnaði hefur tekist að halda starfseminni gangandi og sinna þeim sjúklingum sem þurfa á okkar þjónustu að halda þrátt fyrir aukið álag,“ segir hún.

„Jafnframt viljum við hvetja fólk til þess að koma og starfa með okkur á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Með samstilltu átaki allra, heilbrigðiskerfisins sem og stofnana, þá tekst okkur að vinna með þessa stóru áskorun að manna nægilega vel í heilbrigðiskerfinu.“