Skemmtiferðaskipum fækkar enn milli ára
Áframhaldandi fækkun á komum skemmtiferðaskipa til Akureyrar verður þetta sumarið eins og í fyrra, samkvæmt Pétri Ólafssyni hafnarstjóra. Alls er gert ráð fyrir 156 skipakomum í sumar til bæjarins, samanborið við 179 í fyrra.
Fyrsta skemmtiferðaskip ársins mun koma til Akureyrar á morgun, sunnudagi. Það er AIDAsol sem leggur þá að landi með 2194 farþega innanborðs. Vertíðin byrjar því töluvert fyrr en í fyrra en þá kom fyrsta skip sumarsins þann 7. maí.
Færri minni skip
Að sögn Péturs er þó töluverð fækkun á skipum í ár, eins og í fyrra og hittið fyrra. Árið 2025 komu 179 skip til Akureyrar, árið 2024 voru skipin 201 talsins og árið 2023 206. „Þegar mest lét voru farþegarnir um 270 þúsund, en í ár má áætla að þeir verði um 223 þúsund,“ segir hann.Fækkunin skýrist meðal annars af því að minni skip hafa dregið úr siglingum til landsins fyrst og fremst vegna breytinga á regluverki hér á landi, meðal annars hvað varðar innviðagjöld, tollfrelsi og virðisaukaskatt. „Þetta er orðið miklu flóknara en áður og hefur sérstaklega bitnað á minni skipum,“ segir Pétur en hann var í stóru viðtali hjá akureyri.net síðasta sumar þar sem hann útskýrði hvað hefur breyst, sjá hér: Færri skip í ár – nýtt gjald hefur áhrif.
Færri stórir dagar
Fækkun skipa er einnig áberandi í siglingum til Grímseyjar og Hríseyjar. Í sumar eru 41 skip væntanleg til Grímseyjar og fimm til Hríseyjar. Þó að um sé að ræða aukningu frá síðasta ári í tilviki Grímseyjar er þetta samt sem áður samdráttur miðað við fyrri ár þegar skipin voru fleiri.
Með færri skipakomum verða einnig færri svokallaðir „stórir dagar“, þegar þúsundir farþega streyma í land á sama tíma. Að sögn Péturs hefur fækkunin veruleg áhrif á tekjur, bæði hjá höfninni og ferðaþjónustuaðilum. Segist hann áætla að tekjur hafnarinnar dragist saman um um 150 milljónir króna. Þá gæti tekjutap ferðaþjónustuaðila sem tengjast skemmtiferðaskipum numið 600 til 800 milljónum króna. Aðspurður út í horfur næstu ára segist Pétur reikna með svipuðum skipafjölda á næsta ári en hann bindur vonir við að umferð aukist á ný árið 2028 þegar útgerðir hafa náð að laga sig að breyttum aðstæðum.
Salerni sett á Tangabryggju
Í fyrra voru ný þjónustuhús, 14 litlir kofar, tekin í notkun á hafnarsvæðinu við Tangabryggju. Segir Pétur að aðstaðan hafi fengið góðar viðtökur og verða húsin aftur á svæðinu í sumar og eru fullbókuð. Þá segir Pétur að í sumar verði einnig sett upp salernisaðstaða fyrir gesti á svæðinu og verður hún gjaldfrjáls a.m.k. til að byrja með. Framkvæmdir eru svo í fullum gangi við Torfunesbryggju og stefnt að því að húsið sem nú er þar í byggingu klárist í byrjun sumars. Ekki hefur enn verið tekin endanlega ákvörðun um frekari byggingar á svæðinu. Í sumar er hins vegar gert ráð fyrir að 20 minni skemmtiferðaskip leggi að í sumar við Torfunesbryggju. Þá segir Pétur að til lengri tíma sé stefnt að því að tengja skemmtiferðaskip við landrafmagn, með fyrstu tengingum á Torfunesbryggju áætluðum árið 2027.