Fara í efni
Fréttir

Skáldkonan á Ljósavatni

EYRARPÚKINN - 95
 
Steindór í Hólkoti kunni sögur af Júdítu Sigurðardóttur frá Ljósavatni og sagði mér þær í bænum kalda á milli þess sem ég kvaldi orgelið eða kíkti út um sprungur á bláum kvöldum.
 
Bóndi nokkur gerði orð fyrir heimasætuna á Ljósavatni.
Þú kvaðst níðvísu um mig segir bóndi.
Hver segir það spyr heimasæta.
Konan mín segir bóndi.
 
Þá svarar Júdít með fleygri vísu
 
Það er feil á þinni mey
þundur ála bála
að hún heila hefur ei
hurð fyrir mála skála.
 
Steig bóndi á bak hesti sínum og lét ekki sjá sig framar.
Mér þótti þetta mikil snilld og bað Steina að skýra fyrir mér þundinn álabála.
Á Ljósavatni voru tveir vinnumenn og hétu báðir Steinar.
Fara þeir að vetrarlagi að afla eldiviðar úti á Hálsi og taka viðinn á sleða.
 
Þá orti Júdít
 
Sterkir draga Steinar hlass
stórgrýttur er vegur.
Farðu nú í fjandans rass
faðir minn elskulegur.
 
Og ekki var beinskeytt vísa hennar að afanum gengnum síður hreinskiptin og listileg
 
Fjallaskauðaforinginn
fantur nauðagrófur.
Er nú dauður afi minn
Oddur sauðaþjófur.
 
Sló ljóma á formóður Hraunfellinga skáldkonuna Júdítu í huga mér þegar ég fór um Ljósavatnsskarðið.
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Skáldkonan á Ljósavatni er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.