Fara í efni
Fréttir

Sjúkrahúsið fær 290 milljónir til tækjakaupa

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að úthluta Sjúkrahúsinu á Akureyri 290 milljónum króna af safnliðum fjárlaga til kaupa á tveimur sneiðmyndatækjum. Stærstum hluta fjárins verður varið til kaupa á öflugu tæki sem kostar um 250 milljónir króna. Sjúkrahúsið hefur nú aðeins yfir einu sneiðmyndatæki að ræða, það er orðið 14 ára gamalt og farið að valda vandræðum vegna tíðra bilana.

Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, segir á vef Stjórnarráðsins að þessi nýi tækjakostur muni skipta sköpum fyrir sjúkrahúsið og öryggi sjúklinga á þjónustusvæði þess. Þetta séu mikilvægustu greiningartækin þegar um bráð veikindi er að ræða eða þegar slys ber að höndum. Greiningarhæfnin muni stóraukast og unnt verði að tryggja meiri áreiðanleika og samfellu í þjónustu við sjúklinga. Ráðist verður í útboð á landsvísu um kaup á sneiðmyndatækjum fyrir heilbrigðisstofnanir og segir Hildigunnur stefnt að því að ný tæki sjúkrahússins verði komin í notkun á vordögum.