Fara í efni
Fréttir

Sjúkrahúsið á Akureyri sett á óvissustig

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Sjúkrahúsið á Akureyri hefur verið sett á óvissustig „vegna þess að gjörgæsludeild spítalans getur illa tekið við fleiri sjúklingum og mönnun þar er verulega ábótavant,“ eins og segir í tilkynningu sem birt var á vef stofnunarinnar í dag. Þar segir að staðan verði metin daglega. 

Tilkynningin er svohljóðandi:

„Eins og kunnugt er hefur verið mikið álag á Sjúkrahúsinu á Akureyri og hefur álagið farið vaxandi undanfarnar vikur. Það á sér margar skýringar en fyrst ber að nefna að innlögnum sjúklinga hefur fjölgað og mannekla hefur verið viðvarandi.

Því hefur verið ákveðið að setja Sjúkrahúsið á Akureyri á óvissustig og kemur það til vegna þess að gjörgæsludeild spítalans getur illa tekið við fleiri sjúklingum og mönnun þar er verulega ábótavant. Þá er einnig mikill skortur á hjúkrunarfræðingum á spítalanum.

Staðan verður endurmetin daglega.“

Vert er að geta þess að ekki er útskýrt hvað það merkir nákvæmlega að stofnunin sé á óvissustigi en ljóst að ástandið er altjent ekki ákjósanlegt.