Fara í efni
Fréttir

Sjónaukinn - ráðstefna í Háskólanum á Akureyri

Háskólinn á Akureyri. Ljósmynd: Þorgeir Baldursson.

Árleg ráðstefna Heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri fer fram rafrænt í dag og á morgun. 20. og 21. maí. Áhersla verður lögð á notendamiðaða velferðarþjónustu og sjónum beint að níu þemum, sem eru:

  • Þjónusta við fatlað fólk
  • Notendamiðuð velferðarþjónusta: Hugmyndafræði og þróun
  • Sálræn áföll og áfallamiðuð nálgun
  • Reynsla kvenna af heilbrigðisþjónustu
  • Öldrun
  • Endurhæfing heima og að heiman
  • Fullorðnir – að takast á við ýmsar heilsutengdar áskoranir
  • Geðheilbrigði
  • Störf og aðstæður heilbrigðisstarfsfólks og nemenda

Aðalfyrirlesarar eru Dr. Agnes Higgins, írskur geðhjúkrunarfræðingur, Dr. Yani Hamdani, iðjuþjálfi frá Kanada og svo Alma Ýr Ingólfsdóttir, mannréttindalögfræðingur, og Ragnheiður K. Jóhannesdóttir Thoroddsen, notandi velferðarþjónustu.

Auk erinda aðalfyrirlesara verða um 36 erindi sérfræðinga á sínu sviði.

„Notendamiðuð velferðarþjónusta er í brennidepli núna vegna mikilvægis samvinnu fagaðila og notenda. Við þekkjum það vel úr geð- og fötlunarmálum hvað forræðishyggja var allsráðandi en því viljum við breyta, og ekki bara í þessum málaflokkum heldur líka víðar í velferðarkerfinu“, segir Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri.

Í tilkynningu frá skólanum eru notendur sérstaklega hvattir til að skrá sig á ráðstefnuna og taka þátt sér að kostnaðarlausu.

Smellið hér til að fá nánari upplýsingar í viðburðardagatali Háskólans á Akureyri.