Fréttir
Sjónarspil á Pollinum þegar Þór kvaddi
19.04.2026 kl. 06:00
Mynd: Ármann Hinrik
Varðskipið Þór hélt úr höfn á Akureyri síðdegis í gær eftir nokkurra daga heimsókn og kvaddi með stæl! Ákveðið var að prófa öflugan slökkvibúnað skipsins á Pollinum og úr varð mikið sjónarspil eins og sést á myndum Ármanns Hinriks og Hilmars Friðjónssonar.
Í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar á þessu ári var almenningi boðið í heimsókn í Þór í gær þar sem skipið lá við Torfunefsbryggju og þáði fjöldi fólks boðið. Eftir að síðustu gestir voru kvaddir lagði skipið frá bryggju og „sýningin“ hófst um fimmleytið.
Skipið er búið öflugum slökkvibúnaði eins og sést á eftirfarandi upplýsingum sem akureyri.net fékk hjá stjórnendum Þórs:
-
Fi-Fi slökkvibyssur sem eru ákaflega afkastamiklar en alls geta þær dælt um 3200 rúmmetrum af sjó á klukkustund.
-
Brunadælurnar eru tengdar framan á aðalvélar og því má segja að þær séu alls 12000 hestöfl.
-
Að auki er hægt að nota úðakerfi skipsins við slökkvistörf í landi ef eldur kemur upp nálægt hafnargörðum en úðararnir gera skipinu kleift að komast að eldinum en þeir hylja skipið nær alveg meðan á slökkvistarfi stendur.

Mynd: Hilmar Friðjónsson
Mynd: Ármann Hinrik

Mynd: Hilmar Friðjónsson

Mynd: Ármann Hinrik

Mynd: Ármann Hinrik