Fréttir
Sjö nýútskrifaðir lögregluþjónar til starfa
08.07.2026 kl. 12:30
Nýútskrifuðu lögregluþjónarnir ásamt stjórnendum. Mynd: Lögreglan á Norðurlandi eystra.
Sjö nýútskrifaðir lögregluþjónar voru boðnir velkomnir til starfa hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra núna í vikunni. Því var fagnað í Þórunnarstrætinu með tertu og myndatökum eftir að lögregluþjónarnir ungu undirrituðu heitstafinn og fengu erindisbréf sín afhent.
Myndirnar eru af Facebook-síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
