Fara í efni
Fréttir

Sjáðu skilyrðin sem sett eru fyrir sameiningu

Samkeppniseftirlitið hefur heimilað samruna Norðlenska og Kjarnafæðis eins og Akureyri.net greindi frá í morgun. Í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins er talað um samruna þriggja fyrirtækja, Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH afurða á Blönduósi. SAH afurðir eru að fullu í eigu Kjarnafæðis.

Með skilyrðum, sem felast í sátt fyrirtækjanna og Samkeppniseftirlitsins, skuldbinda þau sig til að grípa til eftirfarandi aðgerða:

Aðgerðir til að efla og tryggja samningsstöðu bænda

  • Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til að standa ekki í vegi fyrir því að bændur færi viðskipti sín frá sameinuðu félagi til keppinauta þess. Jafnframt er tryggður réttur bænda til að semja um afmarkaða þjónustu við sameinað fyrirtæki, til dæmis slátrun, en aðra þjónustu við þriðju aðila, svo sem vinnslu.

Aðgerðir er varða verðlagningu einstakra þjónustuþátta

  • Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til þess að aðgreina í bókhaldi sínu slátrun og vinnslu og lúta skorðum og reglum við verðlagningu á slátrun og annarri nánar skilgreindri þjónustu í tiltekinn tíma. Þannig njóti bændur hagræðis sem sameinað fyrirtæki ætlar að ná og þurfi ekki að sæta verðhækkunum sem óhjákvæmilega geta leitt af samkeppnishamlandi samrunum. Skilyrðin eru jafnframt til þess fallin að styðja við samningsforræði bænda og þar með styrkja það aðhald sem þeir geta beitt gagnvart kjötafurðastöðvum.

Aðgerðir sem rjúfa eignatengsl við minni kjörafurðastöðvar með sölu á eignarhlut til bænda

  • Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til að selja eignarhluti sína í Fjallalambi annars vegar og Sláturfélagi Vopnfirðinga hins vegar. Skulu hlutirnir seldir til bænda, eða félaga í meirihlutaeigu bænda. Er sölunni settur tiltekinn frestur, sem háður er trúnaði.

Aðgerðir til að koma í veg fyrir fækkun keppinauta og viðsemjenda bænda

  • Kjarnafæði hefur átt í viðskiptum við kjötafurðastöðvarnar B. Jensen og Sláturfélag Vopnfirðinga. Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til að eiga í áframhaldandi viðskiptum í tiltekinn tíma við B. Jensen og Sláturfélag Vopnfirðinga. Þessi viðskipti eru mikilvæg fyrir áframhaldandi rekstur þessara fyrirtækja, sem ella kynnu að hverfa af markaði. Miðar framangreind skuldbinding að því að fyrirtækin hafi ráðrúm til að bregðast við breyttum markaðsaðstæðum og starfa áfram sem sjálfstæðir keppinautar.

Aðgerðir til að stuðla að samkeppnislegu sjálfstæði sameinaðs fyrirtækis

  • Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til að setja sér setja sér samkeppnisstefnu, grípa til aðgerða til að tryggja eftirfylgni við sáttina í daglegri starfsemi, tryggja óhæði gagnvart keppinautum á vettvangi stjórnar og lykilstarfsmanna og halda skrá yfir öll samskipti við keppinauta. Eru þessar aðgerðir til þess fallnar að stuðla að því að sameinað fyrirtæki virði bannreglur samkeppnislaga og sporna við tjóni sem leitt getur af aukinni samþjöppun í greininni.

Fréttin um sameininguna í morgun