Fara í efni
Fréttir

SJÁ-hreyfingin hefur fundaröð í Hofi

Hreyfingin SJÁ , sem er opin öllum þeim sem vilja sjá hvað myndi felast í samningi við Evrópusambandið, óháð afstöðu til þess hvernig kosið yrði að loknum viðræðum, stendur fyrir fundi í Hofi á morgun, fimmtudaginn 6. ágúst. Fundurinn hefst kl. 17.00.
 
Á heimasíðu SJÁ segir að í hreyfingunni sé að finna  samansafn fólks úr öllum áttum sem sameinast um einfalda hugmynd: að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst.  SJÁ efnir á næstunni til opinna funda víðs vegar um landið og er fundurinn í Hofi á morgun sá fyrsti í þeirri röð. Mælt er með því að fólk skrái sig á viðburðinn.
 
Frummælendur verða:
 
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ
  • Sindri Stefánsson og Sigrún Benediktsdóttir, sérfræðilæknar
  • Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri AkureyrarAkademíunnar
Auk þess flytur talsmaður SJÁ stutt ávarp. Fundarstjóri verður Villi vandræðaskáld, bæjarlistamaður Akureyrar 2026.
 

Viðburðurinn á Facebook