Fara í efni
Fréttir

SÍMEY: Dýpri þekking á þjónandi leiðsögn

Þáttakendur og leiðbeinendur á námskeiðinu. Að námskeiði loknu fengu þátttakendur skírteini sem staðfestir hæfni þeirra til að kenna hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar. Mynd: SÍMEY

Nýlega var haldið fimm daga námsskeið í SÍMEY í þjónandi leiðsögn (e. Gentle Teaching). Námskeiðið var haldið í samstarfi við velferðarsvið Akureyrarbæjar en leiðbeinendurnir á námskeiðinu, Tim Jones og Michael Lavis, starfa báðir við COR Academy í Saskatchewan í Kanada. 

Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu SÍMEY er COR einskonar þjálfunar- og fræðslumiðstöð sem býður m.a. upp á námskeið fyrir fólk í félags- og fötlunarþjónustu, skólum og umönnun. Eitt af helstu markmiðum COR er að hjálpa fólki að vinna betur með einstaklingum, sérstaklega viðkvæmum hópum. 

Markmiðið með námskeiðinu í SÍMEY var að dýpka þekkingu þátttakenda á þjónandi leiðsögn og veita þeim færni til að geta haldið námskeið og leiðbeint öðrum um hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, auk þess að þjálfa mentora. Námskeiðið var ætlað fólki sem hafði lokið grunn- og mentornámi í þjónandi leiðsögn og var með að minnsta kosti yfir fimm ára starfsreynslu í umönnun og stuðningi.

Leiðbeinendurnir, Tim Jones og  Michael Lavis, hafa áratuga reynslu í að kenna og þjálfa þjónandi leiðsögn. Báðir hafa einnig áratuga reynslu sem stjórnendur og hefur Michael hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir sín störf. Tim er einnig fyrrverandi forseti Gentle Teaching samtakanna.