Fara í efni
Fréttir

Símenntun og KHA fá 60 milljóna króna styrk

Háskólinn á Akureyri. Mynd: unak.is.

Símenntun Háskólans á Akureyri og Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöð Háskólans á Akureyri (KHA) hlutu á dögunum styrk frá Erasmus+ styrkjaáætlun Evrópusambandsins fyrir mennta-, æskulýðs- og íþróttamál að upphæð 400.000 evrur. Frá þessu er sagt í frétt á vef HA.

Verkefnið sem um ræðir snýr að vitundarvakningu gagnvart sjálfbærni í kennslu með áherslu á viðskipta- og hagfræðigreinar. Samstarfsaðilar Háskólans á Akureyri við verkefnið eru háskólar í Póllandi, Tékklandi, Slóveníu, Ítalíu og Serbíu. Heiti verkefnisins er Reflecting Economics and Climate Change in Teaching (REACCT).

Í frétt Háskólans segir um aðkomu að verkefninu: 

Símenntun og KHA hafa í dag skapað sér sérfræðiþekkingu í að setja upp umgjörð fyrir fjarnám og stafræna hæfni enda dugleg að koma að verkefnum sem snúa að framþróun í þeim efnum. Fyrir eru þau í Evrópuverkefninu DANTE sem snýr að því að styðja við stafræna hæfni háskólakennara og starfsfólks en því verkefni lýkur sumarið 2023. Einnig eru þau þátttakendur í BlendVet í samstarfi við Verkmenntaskólann á Akureyri þar sem útbúin er umgjörð um fjarnám í verknámsskólum og lýkur því verkefni árið 2024. Að auki eru þau í verkefni sem ber heitið Green og snýr að því að koma umhverfisvænum lausnum og stafrænni hæfni inn í kennslu og daglegt líf.

„Símenntun hefur stóraukið þekkingu sína á fjarnámslausnum og myndað mikilvægt tengslanet á meginlandi Evrópu. Það er einnig mikilvægt fyrir Símenntun að gera sig gildandi og miðla af reynslu sinni í fjarnámslausnum til annarra stofnanna,“ segir Stefán Guðnason, forstöðumaður Símenntunar Háskólans á Akureyri, aðspurður um afraksturinn af þátttöku í ofangreindum verkefnum.

Þá segir Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar Háskólans á Akureyri, það mikilvægt fyrir háskólann að fylgjast með og taka þátt í því sem er að gerast alþjóðlega þegar kemur að fjarnámi og stafrænni hæfni. „Sú reynsla sem kemur úr þessum verkefnum styrkir starf Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar HA sem nýtist Háskólanum í að þróa sitt sveigjanlega nám áfram,” segir Auðbjörg að lokum.