Fara í efni
Fréttir

Silvía Rán, Sunna og SA illviðráðanlegar

SA konur fagna sigri gegn SR í fyrsta leiknum og eiga að öllum líkindum eftir að fagna oft í vetur. Mynd: SA íshokkí - Ólafur Þorgrímsson.

Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí byrjar tímabilið með látum og margt sem bendir til þess að SA-konur verði illviðráðanlegar í vetur. SA vann 12-1 sigur á Fjölni í öðrum leik sínum í Toppdeildinni í gærkvöld.

Eins og í fyrsta leik mótsins gegn SR kom fyrsta mark SA snemma, aðeins liðin 41 sekúnda þegar Sunna Björgvinsdóttir kom pökknum í markið. Þær Sunna og Silvía Rán Björgvinsdóttir voru áberandi í öllum aðgerðum SA-liðsins, Silvía Rán með þrjú mörk og fjórar stoðsendingar og Sunna með þrjú mörk og þrjár stoðsendingar.

SA-konur fylgdu markinu eftir og höfðu 4-1 forystu eftir fyrsta leikhlutann, bættu við þremur í öðrum og fimm í þeim þriðja. Fjölnisliðið hefur á að skipa nokkrum mjög reyndum leikmönnum, en að meirihluta þó mjög ungt lið. Þær börðust reyndar vel allan tímann þrátt fyrir yfirburði SA og markaregnið. 

En liðið er ekki bara Sunna og Silvía Rán því allur hópurinn fékk tækifæri til að skína og ungar hokkíkonur settu einnig mark sitt á leikinn. Marey Viðja Sigurðardóttir, fædd 2010, kom inn í markið í stað hinnar reyndu og öflugu Shawlee Gaudreault og spilaði síðasta leikhlutann. Varði allt sem á markið kom, en það voru þó reyndar ekki nema sex skot. Í markaregninu eru svo tvö fyrstu meistaraflokksmörk því Aníta Júlíana Benjamínsdóttir, fædd 2010, og Aþena Elínrós Guðlaugsdóttir, fædd 2012, skoruðu báðar sitt fyrsta mark með meistaraflokki.

Fyrsti leikhlutinn var ef til vill sá jafnasti, 18 skot gegn 11, en í öðrum leikhluta náðu gestirnir engu skoti á mark samkvæmt skráningu markadómara. Samanlagt átti SA 52 skot á mark, en Fjölnir 17. 

SA - Fjölnir 12-1 (4-1, 3-0, 5-0)

SA

Mörk/stoðsendingar: Silvía Rán Björgvinsdóttir 3/4, Sunna Björgvinsdóttir 3/3, Hilma Bóel Bergsdóttir 2/0, Aþena Elínrós Guðlaugsdóttir 1/1, Magdalena Šulová 1/1, Aníta Júlíana Benjamínsdóttir 1/0, Sólrún Assa Arnardóttir 1/0, Herborg Geirsdóttir 0/3, Guðrún Ásta Valentine 0/2, Sveindís Mary Sveinsdóttir 0/1
Refsingar: 8 mínútur.
Varin skot: Shawlee Gaudreault 10 af 11 (90,9%), Marey Viðja Sigurðardóttir 6 af 6 (100%).

FJÖLNIR

Mörk/stoðsendingar: Laura-Ann Murphy 1/0, Elísa Dís Sigfinnsdóttir 0/1.
Refsingar: 2 mínútur.
Varin skot: Karitas Sif Halldórsdóttir 40 af 52 (77,9%).

NÆST:

  • 25.-27. september: Alþjóðlegt mót í Skautahöllinni í Laugardal
  • 10. október: SA - SR