Fara í efni
Fréttir

Sigurður alvarlega veikur á Spáni – safna fyrir flugi heim

Sigurður Kristinsson, 71 árs Akureyringur, hefur legið á sjúkrahúsi á Spáni síðan um miðjan ágúst þegar hann fékk alvarlegt heilablóðfall. Fjölskylda Sigurðar verður að standa straum af flutningi hans heim til Íslands og fjársöfnun hefur verið hrundið af stað af þeim sökum.

Fjölskyldan hefur þegar fengið tilboð frá tveimur fyrirtækjum um að flytja Sigurð til Íslands. Annað frá SOS International í Bretlandi upp á 8,2 milljónir króna, hitt frá fyrirtæki í Noregi upp á 6,7 milljónir.

Reikningur var stofnaður í nafni dóttur hans, Rúnu Kristínar, í Sparisjóði Höfðhverfinga.

  • Reikningsnúmerið er: 1187 - 05 - 250534, kennitala 150873-4879

Björg Unnur Sigurðardóttir ásamt Sigurðu föður sínum á sjúkrahúsinu á Spáni.

„Afleiðingar heilablóðfallsins eru mjög slæmar. Pabbi er lamaður á vinstri hlið líkamans, hann getur ekki kyngt og er það viðbragð væntanlega horfið til lífstíðar. Hann er með mismikla meðvitund um umhverfi sitt og mjög þróttlítill,“ segir Björg Unnur dóttir Sigurðar við Akureyri.net.

Sigurður var í Torrevieja þegar hann veiktist. „Pabbi hefur dvalið á þeim slóðum stóran hluta ársins síðustu ár líkt og margir Íslendingar, sér til heilsubótar, eins kaldhæðnislegt og það hljómar núna.“

Þar sem hann hafði dvalið á Spáni umfram ferðatryggingatímann skv. kreditkortaskilmálum var Sigurður ekki með gilda ferðatryggingu og þar af leiðandi ekki í boði að flytja hann heim til Íslands með sjúkraflugi á kostnað tryggingafélags. Sjúkratryggingar Íslands styrkja ekki flutning sjúklinga á milli landa samkvæmt lögum.

„Við leitum til allra sem mögulega hafa tök á að styrkja þessa vegferð okkar til að koma pabba heim í íslenskt umhverfi, í hið íslenska heilbrigðiskerfi og til fólksins síns,“ segir Björg Unnur.

Rúna Kristín Sigurðardóttir við sjúkrabeð föður síns á Spáni.

„Til að byrja með þurfti að bíða í að minnsta kosti fjórar vikur til að fá samþykki frá lækni fyrir flugi heim vegna áhrifa heilablóðfallsins. Pabbi fékk þó ekki að dvelja á sjúkrahúsinu í Torrevieja allan þann tíma þar sem hann var ekki í bráðri lífshættu, heldur þurfti að koma honum fyrir á hjúkrunarheimili á kostnað aðstandenda. Við aðstandendur vorum svo bjartsýnir að halda að hann gæti öðlast nógu mikinn styrk til að fara heim í hjólastól en eftir því sem á dvölina hefur liðið versnar ástand hans,“ segir Björg Unnur.

Eftir nokkurra daga dvöl á hjúkrunarheimilinu datt Sigurður fram úr rúminu, sem var ekki sjúkrarúm, fékk höfðuáverka og var fluttur á sjúkrahús í Murcia. Þar greindist hann með alvarlega nýrnabilun og þvagfærasýkingu. „Hann var síðan sendur aftur til baka en því miður ekki til langs tíma því hann var aftur fluttur á sjúkrahúsið og þá með lungnabólgu og fleiri vandamál.“

Nú einni og hálfri viku síðar, er búið að vinna bug á flestum sýkingum að mestu, að sögn Bjargar Unnar, en þó er Sigurður það illa haldinn og máttfarinn að hann mun aldrei geta flogið með hefðbundnu áætlunarflugi, hvort sem er í stól eða börum.

  • Fjallað var um mál Sigurðar á RÚV á dögunum. Hér er umfjöllun Kastljóss og hér frétt úr fréttatímanum.