Fara í efni
Fréttir

Sigur í fyrsta leik Þórs á nýjum velli

Stórglæsilegt sigurmark! Boltinn syngur í netinu hjá Fram eftir frábært skot norska framherjans Sebastian Haugland, númer 9. Mynd: Ármann Hinrik

Þórsarar unnu 1:0 baráttusigur á Fram í 3. umferð efstu deildar karla í knattspyrnu á glænýjum gervigrasvelli sínum í dag, dyggilega studdir af fjölmörgum áhorfendum. Þetta var fyrsti keppnisleikurinn á nýja vellinum og jafnframt fyrsti heimaleikur Þórs í efstu deild síðan árið 2014.

Ef til vill hefur spennustigið á þessum tímamótum verið of hátt hjá leikmönnum Þórs framan af leik, því Framarar byrjuðu mun betur og Þórsarar voru svifaseinir og náðu illa saman. Framarar náðu þó ekki að nýta yfirburði sína fyrsta hálftímann og áttu eitt skallafæri sem fór yfir markið. Smám saman hristu Þórsarar af sér slenið og fóru að bíta frá sér en fyrri hálfleikur var markalaus.

Yann Emmanuel Affi var frábær í vörn Þórs í dag. Sverrir Páll Ingason, til hægri, kom inn í byrjunarliðið í dag sem bakvörður. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Seinni hálfleikur var ekki nema fjögurra mínútna gamall þegar eina mark leiksins leit dagsins ljós. Christian „Greko“ Jakobsen renndi boltanum á Sebastian Haugland sem lét vaða rétt utan teigs hægra megin. Þrumuskot sem endaði uppi í markhorninu fjær, algerlega óverjandi fyrir Viktor Frey Sigurðsson í marki Framara. Það sem eftir lifði leiks náðu Framarar sífellt fastari tökum á leiknum en Þórsarar sýndu ódrepandi baráttuvilja og hentu sér í allar tæklingar og fyrir öll skot. Þeir fengu líka gríðarlegan stuðning úr stúkunni og stemmningin á þessum fyrsta heimaleik liðsins í tólf ár var svakaleg.

Vörn Þórs var gríðarlega þétt, með Yann Emmanuel Affi sem besta mann, og Aron Birkir Stefánsson í markinu var feikna öruggur í sínum aðgerðum í teignum. Framarar komu ekki mörgum skotum á markið, þrátt fyrir að sækja mikið, og Aron varði tvisvar glæsilega. Fyrst sýndi hann stórkostleg tilþrif þegar hann blakaði góðu skoti frá Fred rétt framhjá stönginni og síðan varði hann vel snöggt skot af stuttu færi.

Þórsarar þakka áhorfendum fyrir stuðninginn – sem var magnaður í dag. Aron Birkir Stefánsson fyrirliði, grænklæddur, átti stórleik í markinu. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þrjár breytingar voru gerðar á byrjunarliði Þórs frá leiknum við KR. Isaac Atanga, Sverrir Páll Ingason og Bjarni Guðjón Brynjólfsson komu inn í liðið í stað Ragnars Óla Ragnarssonar, Ágústs Hlyns Eðvaldssonar og Sigfúsar Fannars Gunnarssonar. Miðvörðurinn Ragnar Óli fór meiddur af velli á KR-vellinum, Ásbjörn Líndal Arnarsson, sem varð 18 ára í febrúar, lék í hans stað í miðri vörninni og Sverrir Páll, sem enn er 17 ára, var vinstri bakvörður í stað Ásbjörns. Bjarni Guðjón var á miðjunni og Atanga á kantinum í stað Sigfúsar.

Frábær sigur hjá nýliðum Þórs, sem byggðist fyrst og fremst á gríðarlegum dugnaði og baráttu og stuðningi úr stúkunni. Næsti leikur liðsins er næstkomandi mánudagskvöld þegar liðið heimsækir Breiðablik í Kópavoginn.

Leikskýrslan

Staðan í efstu deild karla

Byrjunarlið Þórs í fyrsta heimaleiknum á nýja gervigrasvellinum – VÍS-vellinum á Ásnum. Aftari röð frá vinstri: Ásbjörn Líndal Arnarsson, Atli Sigurjónsson, Christian „Greko“ Jakobsen, Yann Emmanuel Affi, Sebastian Heimvik Haugland og Aron Birkir Stefánsson. Fremri röð frá vinstri: Sverrir Páll Ingason, Kristófer Kristjánsson, Isaac Atanga, Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Einar Freyr Halldórsson. Mynd: Ármann Hinrik