Sextán luku námi í dyravörslu hjá SÍMEY
Sextán manns luku nýlega dyravarðanámskeiði sem SÍMEY hefur árlega haldið í samstarfi við lögregluna á Norðurlandi eystra og stéttarfélagið Einingu-Iðju.
Í námi dyravarða er sjónum beint að skyldum þeirra og réttindum frá ýmsum sjónarhornum. Námskeiðið stóð yfir í sex kvöld og var haldið ýmist í húsnæði SÍMEY við Þórsstíg, á slökkvistöðinni á Akureyri og í húsnæði Atlantic Jiu jitsu Iceland við Tryggvabraut. Til þess að geta skráð sig á námskeiðið þurftu þátttakendur að að vera orðnir 20 ára gamlir og hafa hreint sakavottorð. Sjá nánar hér
Samkvæmt frétt á heimasíðu SÍMEY ræddi Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari um lög um veitinga- og gististaði, skemmtanahald, borgaralega handtökur, áfengislög og leyfi vegna áfengisveitinga við þátttakendur. Jóhann Þór Jónsson deildarstjóri eldvarnaeftirlitsins ræddi um brunavarnir, Valdís Ösp Jónsdóttir fjallaði um neyðarmóttöku SAk og Margeir Páll Björgvinsson frá lögreglunni á Norðurlandi eystra ræddi m.a. um fíkniefni, skoðun skilríkja og samskipti dyravarða og lögreglu. Þá sagði fulltrúi frá VÍS frá tryggingum í starfi dyravarða, Tómas Pálsson frá Atlantic Jiu jitsu Iceland veitti þátttakendum innsýn í sjálfsvörn og handtökur og Jóhann Jóhannsson frá Rauða krossinum leiðbeindi um skyndihjálp. Loks fjallaði fulltrúi frá Einingu-Iðju um réttindi og skyldur dyravarða.