Fara í efni
Fréttir

Sesselja Ingibjörg og Björn í stjórn Rarik

Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir og Björn Gíslason voru kjörin í stjórn Rarik á aðalfundi þessa opinbera hlutafélags i gær.

Akureyringurinn Björn Gíslason, verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka við Húsavík, og Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA á Akureyri, voru kosin í stjórn Rarik á aðalfundi þessa opinbera hlutafélags sem haldinn var í gær.

Aðalfundurinn var haldinn í húsnæði Driftar EA í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri. Þau sem gengu úr stjórn voru félagsins voru Ari Kristinn Jónsson, varaformaður stjórnar, sem tekið hefur við starfi framkvæmdastjóra fjárfestingasjóðs NATO, og Þóra Þórisdóttir sem sest í varastjórn. Áfram sitja í stjórn félagsins Ingunn Agnes Kro, formaður stjórnar, Sigrún Hallgrímsdóttir og Sverrir Jan Norðfjörð.

„Með því að halda fundinn hjá Drift var jafnframt dregið fram mikilvægi Norðurlands og landsbyggðarinnar í starfsemi okkar, í samræmi við hlutverk félagsins og áherslur um öfluga nærveru og uppbyggingu víða um land,“ segir á vef Rarik. „Það er sérstakt ánægjuefni að fundurinn sé haldinn hér hjá Drift sem er hreyfiafl frumkvæðis og nýsköpunar. Frumkvæði og nýsköpun eru einmitt grunnurinn að framþróun og betri lífskjörum,“ sagði stjórnarformaðurinn, Ingunn Agnes Kro, við setningu aðalfundarins.

Rarik dreifir – Orkusalan framleiðir og selur

Rarik ohf. er opinbert hlutafélag í eigu ríkisins sem var stofnað 1. ágúst 2006 og tók þá við rekstri Rafmagnsveitna ríkisins sem hófu starfsemi sína þann 1. janúar árið 1947. „Meginhlutverk okkar hefur frá upphafi verið að afla og dreifa raforku með hagkvæmum hætti til almennings og atvinnulífs. Í dag er aðalverkefni okkar er að dreifa raforkunni en dótturfélagið Orkusalan sér um framleiðslu og sölumál. Rarik á og rekur hitaveitur á fjórum stöðum á landinu. Orkusalan á og rekur sex vatnsaflsvirkjanir. Rarik Orkuþróun ehf. er dótturfélag okkar sem sinnir ráðgjafa- og þróunarverkefnum á vegum Rarik hér heima og erlendis,“ segir á vef félagsins.

  • Umfjöllun um aðalfund Rarik á vef félagsins:

Áframhaldandi uppbygging í brennidepli