Fréttir
Sérsveitin handtók mann í miðbænum
05.06.2026 kl. 20:15
Ungur maður var handtekinn í miðbæ Akureyrar um sjöleytið í kvöld. Meðfylgjandi myndir voru teknar klukkan 12 mínútur yfir sjö þar sem maðurinn stóð handjárnaður fyrir utan litla bifreið og tveir sérsveitarmenn Ríkislögreglustjóra höfðu gætur á honum.
Varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra staðfesti í samtali við mbl.is – sem sagði fyrst frá málinu – að lögreglan hefði ráðist í aðgerðir en vildi ekki gefa upp frekari upplýsingar.
