Fara í efni
Fréttir

Nám í HA fyrir ráðgjafa vegna heilabilunar

Háskólinn á Akureyri. Ljósmynd: Þorgeir Baldursson.

Háskólinn á Akureyri hefur fengið sjö milljóna króna styrk frá heilbrigðisráðuneytinu til að koma á fót sérnámi fyrir ráðgjafa á sviði heilabilunar. Námið verður 60 ETCS einingar á meistarastigi og lýkur með diplóma. Markmiðið er að auka sérþekkingu á þessu sviði hér á landi í samræmi við aðgerðaáætlun í þjónustu við fólk með heilabilun til ársins 2025, að því er segir á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, birti aðgerðaáætlun í þjónustu við fólk með heilabilun fyrr á þessu ári og er það í fyrsta sinn sem sett er fram opinber stefna hér á landi í þessum málaflokki. Meðal aðgerða sem þar eru tilgreindar er að komið verði á fót sérnámi fyrir heilabilunarráðgjafa og hófust þegar viðræður við Háskólann á Akureyri um að hrinda því í framkvæmd.

„Heilabilunarráðgjafi getur með þekkingu sinni og reynslu stuðlað að auknum gæðum í umönnun einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma með stuðningi, leiðsögn, ráðgjöf og kennslu til þeirra og fjölskyldna þeirra. Á þann hátt má auka lífsgæði heilabilaðra og fjölskyldna þeirra. Auk þess getur ráðgjafinn sinnt fræðslu og ráðgjöf til starfsfólks og tekið þátt í stefnumótun og uppbyggingu verklagsferla varðandi málefnið,“ segir á vef ráðuneytisins.

Háskólinn á Akureyri hefur kynnt ráðuneytinu drög að námsskrá og reiknað er með að námið geti byggst ofan á grunnnám í hjúkrunarfræði, iðjuþjálfun, félagsráðgjöf eða sálfræði. Námið skapar einnig möguleika á að námskeið þess nýtist öðrum fagstéttum eins og lögreglumönnum og öðrum meistaranámsnemum. Stefnt er að því að námið hefjist næsta haust.