Fara í efni
Fréttir

Senn ráðist í viðhald malbikaðra gatna

Hríseyjargata og Eyrarvegur eru meðal gatna sem verða lagaðar í sumar. Mynd af vef Akureyrarbæjar.

Á næstu vikum verður ráðist í viðhald á malbikuðum götum á Akureyri. Samtals nemur vegalengdin sem framkvæmdir ná til hátt í þremur kílómetrum á 12 stöðum í bænum, að því er fram kemur á vef Akureyrarbæjar.

Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins á að verja 129 milljónum króna í viðhald malbikaðra gatna. Undir málaflokkinn falla yfirbræðslur, holufyllingar, lagfæringar á kantsteinum og hraðahindrunum og ófyrirséð viðhald.

Verktími er áætlaður frá byrjun júní og fram í ágúst. Nánari tímasetningar fyrir einstakar götur liggja ekki fyrir á þessari stundu en stefnt er að því að upplýsa um framvindu og áætlun jafnóðum.

Sérstök áhersla verður lögð á góða upplýsingagjöf þegar loka þarf götum að hluta eða í heild. Athygli er vakin á heimasíðu bæjarins, www.akureyri.is, sem og samfélagsmiðlunum Facebook og Twitter þar sem slíkar tilkynningar má finna.

Nánar upplýsingar hér um þessar framkvæmdir.