Fara í efni
Fréttir

Seldar gistinætur aldrei verið fleiri

Ljósmynd: Snæfríður Ingadóttir

Met var slegið í fjölda seldra gistinátta á Norðurlandi í júlí og ágúst skv. tölum frá Hagstofunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.

„Þetta er í samhengi við þróunina í maí og júní , en sérstaka athygli vekur fjölgun gistinátta í ágúst sem sýnir enn betur þá þróun að sumartímabilið er orðið lengra og teygir sig nú frá maí og vel inn í september. Þar spilar aukið millilandaflug um Akureyrarflugvöll lykilhlutverk,“ segir í tilkynningunni.

„Íslendingar hafa áfram nýtt sér tækifærin sem felast í enn öflugri ferðaþjónustu, því gistinóttum þeirra hefur fjölgað umtalsvert frá því sem var fyrir heimsfaraldur. Í júlí voru gistinæturnar til dæmis tæplega 60% fleiri en árið 2018 og í ágúst voru þær rúmlega í 145% fleiri en árið 2018. Íslendingum á ferðalagi um Ísland hefur því ekki fækkað frá því sem áður var, ef ekki er tekið mið af árunum 2020-2021 sem voru verulega lituð af heimsfaraldrinum.“

Nýting hótel herbergja hefur farið upp á við og var rúmlega 80% í júlí og 83% í ágúst. „Næg tækifæri eru til staðar til að taka á móti fleira ferðafólki yfir sumarið og til að nýta þau er samstaða ferðaþjónustufyrirtækja, sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila mikilvæg.“