Fara í efni
Fréttir

Segja Akureyrarbæ mismuna starfsfólki

Samkvæmt aðgerðaáætlun BSRB mun starfsfólk sundstaða og íþróttamiðstöðva hjá Akureyrarbæ fara í verkfall um hvítasunnuhelgina, 27.-29. maí ef ekki verður samið áður.

BSRB hefur birt myndir eða skilti þar sem spjótunum er beint að Akureyrarbæ, ásamt fleirum. Í yfirlýsingu BSRB undir fyrirsögninni Sömu laun fyrir sömu störf! er fullyrt að sveitarfélög landsins mismuni starfsfólki sínu, fólki sem vinni sömu eða sambærileg störf, jafnvel inni á sömu vinnustöðum þannig að sumir eigi að sætta sig við 25% minni launahækkun en aðrir. „Þannig er starfsfólki gert að horfa upp á það að vinnufélagar þeirra, í nákvæmlega sömu vinnu, fái launahækkun frá 1. janúar, en það sjálft ekki fyrr en 1. apríl,“ segir í yfirlýsingunni. Akureyrarbær er á lista sem fylgir þessari yfirlýsingu, yfir sveitarfélög sem mismuna starfsfólki sínu.

Í yfirlýsingunni segir enn fremur:

Um er að ræða fólk sem vinnur ómissandi störf, t.d. við umönnun barna, í grunnskólum og frístundaheimilum, þjónustu við fatlað fólk og eldra fólk, í sundlaugum og íþróttamannvirkjum, höfnum, bæjarskrifstofum og áhaldahúsum, en sveitarfélögin borga lægstu laun á opinberum markaði. Þessi óbilgirni sveitarfélaga gagnvart starfsfólki sínu verður ekki liðin.

Aðildarfélög BSRB hafa því boðað til verkfalla í leik- og grunnskólum, frístundamiðstöðvum, sundlaugum, mötuneytum, íþróttamannvirkjum, þjónustumiðstöðvum, bæjarskrifstofum, áhaldahúsum og höfnum í 29 sveitarfélögum. Hátt í 2000 manns taka þátt í aðgerðunum sem eru umfangsmiklar og munu raska starfsemi sveitarfélaga og lífi fólks verulega. Ekki er gripið til verkfallanna af léttúð heldur til að knýja þau sveitarfélög landsins að samningsborðinu sem neita að leiðrétta launamisrétti gagnvart starfsfólki sínu.