Fréttir
Samverustund í tilefni af „Gulum september“
05.09.2026 kl. 06:00
Í tilefni af Gulum september tekur fjölbreyttur hópur samtaka á Akureyri höndum saman og býður til samverustundar í Kjarnaskógi í dag, laugardaginn 5. september klukkan 14.00.
- Gulur september er tileinkaður vitundarvakningu um geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir. „Með viðburðinum viljum við minna á mikilvægi þess að vita hvert hægt er að leita – bæði fyrir okkur sjálf og fólkið í kringum okkur,“ segir í tilkynningu frá þeim sem standa fyrir dagskránni.
Yfirskrift samverustundarinnar er Hver grípur þig þegar á reynir? „Markmið viðburðarins er að skapa rými til að staldra við og eiga notalega stund saman, ásamt því að vekja athygli á fjölbreyttri og gjaldfrjálsri þjónustu sem stendur fólki til boða hér á Akureyri og nágrenni,“ segir í tilkynningu.
Hvað verður á dagskrá?
- Leidd hugleiðsla/skógarbað með Sjálfsrækt
- Hugvekja frá séra Sindra Geir Óskarssyni
- Ketilkaffi í boði Skógræktarfélagsins
- Kleinur frá Gæðabakstri
- Fulltrúar samtakanna verða á staðnum til að spjalla við og kynna þjónustu sína.
Að viðburðinum standa Aflið, Bergið Headspace, Bjarmahlíð, Frú Ragnheiður, Gley Mér Ei, Grófin Geðrækt, Hjálp 48, KAON, Kvennaathvarfið, Píeta og Sorgarmiðstöð, sem öll bjóða upp á gjaldfrjálsa þjónustu á Akureyri.
HVER GRÍPUR ÞIG?
- Kjarnaskógur – Birkivellir (fyrir neðan strandblaksvellina)
- 5. september kl. 14.00.