Fara í efni
Fréttir

Samvera fólks sem hefur misst ástvin í sjálfsvígi

Á morgun, mánudag, verður næsta minningasamvera hjá stuðningshópi Píeta í kapellu Akureyrarkirkju, fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi. 
 
Fólk kemur „með myndir eða muni sem tengjast hinum látna og segir frá því það er svo mikilvægt að hópurinn sem heild fái tilfinningu fyrir látnum og elskuðum ættingjum sem verða síðan áfram til umræðu, það skapar mikilvæga nánd innan hópsins,“ segir í tilkynningu frá Píeta samtökunum.

Allir eru velkomnir en Píeta hvetur fólk til að skrá sig á viðburðinn og deila honum áfram: https://fb.me/e/54E6exTAY
 
„Jafningjastuðningur hefur margsannað sig þegar kemur að áföllum og sorgum lífsins. Það er eitthvað sérstakt sem gerist þegar fólk deilir reynslu og treystir hvert öðru fyrir eigin hugsunum og líðan þó ekki sé nema það að þoka einsemdarinnar hverfur,“ segir í tilkynningu Píeta. „Það er svo merkilegt hvað traust og samlíðan gerir mikið fyrir okkar sárustu reynslu og tilfinningar. Í svona starfi eru gæðin fyrst og fremst fólgin í tjáningu og hlustun en þá er líka dýrmætt að hafa reyndan hópstjóra sem heldur utan um stundina.“
 
Séra Hildur Eir Bolladóttir leiðir hópinn á Akureyri. Hópurinn hittist annan mánudag í mánuði í kapellu Akureyrarkirkju og hefst samveran klukkan 20:00.