Fara í efni
Fréttir

Samráð er lykillinn að góðum Bíladögum

Frá Bíladögum á Akureyri á síðasta ári. Mynd: Þorgeir Baldursson

Bíladagar hefjast á fimmtudaginn kemur, 12. júní, og standa yfir til 17. júní þegar þeim lýkur með bílasýningu í Boganum. Dagskráin er með hefðbundnum hætti þar sem keppt verður í ýmsum greinum, boðið upp á bílasýningar og fleira fyrir áhugafólk um bíla og akstursíþróttir. Helgin er ein af þeim stærri á árinu hjá lögreglunni á Akureyri, en Jóhannes Sigfúson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að undirbúningur sé orðinn mjög góður fyrir helgina og lykillinn að góðum Bíladögum fyrir alla, sé gott samtal þeirra sem að dögunum koma.

Samráðsfundir orðinn fastur liður

„Við erum búin að fara í gegnum marga Bíladaga, og á hverju ári bætist í reynslubankann,“ segir Jóhannes við blaðamann Akureyri.net. „Við erum í mjög góðu samstarfi við Bílaklúbb Akureyrar, Akureyrarbæ, tjaldstæðin, Aflið, Slökkviliðið og aðra sem koma að Bíladögum. Það eru haldnir samráðsfundir í aðdraganda Bíladaga og ég var einmitt að koma af fundi númer tvö rétt í þessu.“ 

Eftir að Bílaklúbburinn opnaði aðstöðu sína upp á Rangárvöllum er þetta allt annað

„Við hjá lögreglunni erum að draga lærdóm af Bíladögum fyrri ára, og miðum mönnun og viðbragð við það,“ segir Jóhannes. „Þetta er þung og stór helgi fyrir okkur og við bætum vel í mannskapinn. Það eru allt að 15 manns á vakt þegar mest er þessa helgi. Við fáum eiginlega bara alla sem vettlingi geta valdið upp á dekk. Þetta er líka löng helgi, hún hefst á fimmtudegi og lýkur í rauninni ekki fyrr en á þriðjudegi. Við erum með aukið umferðareftirlit þessa daga, og fáum liðsauka frá lögreglunni á Tröllaskaga, sem sinnir auknu hraðaksturseftirliti.“

Bílasýning Bílaklúbbs Akureyrar í Boganum nýtur alltaf mikilla vinsælda. Mynd: Þorgeir Baldursson

Kvörtunum hefur fækkað

„Bíladagar hafa þróast til betri vegar síðan þeir voru haldnir fyrst,“ segir Jóhannes. „Það skapaðist oft leiðindaástand hérna fyrstu árin þegar flestir keppnisviðburðir fóru fram innanbæjar. Eftir að Bílaklúbburinn opnaði aðstöðu sína upp á Rangárvöllum er þetta allt annað. Þar er líka spólsvæði þannig að þeir sem þurfa að fá útrás fyrir spólþörfina geta fengið hana þar, en ekki á götum bæjarins. Kvörtunum sem okkur berast frá bæjarbúum hefur fækkað mikið eftir þetta.“

„Ég hef trú á því að það hafi líka mikið að segja að við erum sýnilegri og fleiri á vakt,“ segir Jóhannes. „Svo gerum við kröfur á Bílaklúbbinn um gæslu á tjaldsvæðinu þeirra, þar sem við förum fram á sómasamlega mönnun og eftirlit, en þeir opna sérstakt tjaldstæði upp á Rangárvöllum fyrir Bíladaga. Einnig erum við í samtali við eigendur stórra bílastæða í bænum og stundum er þeim einfaldlega lokað yfir nóttina til þess að forðast umferð og spól.“

Fleiri á vakt og fleiri brot

„Það eru alltaf einhverjir svartir sauðir sem eru með læti innanbæjar eða stunda glæfraakstur,“ segir Jóhannes. „Staðreyndin er sú að það eru fjölmörg umferðarlagabrot sem liggja eftir helgina. Svo erum við að skipta okkur af ýmsum búnaði á bílunum sem er ólöglegur, eins og litaðar filmur á framrúður bíla. Hraðakstur og fíflagangur í umferðinni er tekinn föstum tökum. Það verður svo að taka með í reikninginn, að fjölgun brota á sér líka stað vegna þess að við erum fleiri á vakt og komumst yfir meira.“

Við höfum haft áhyggjur af neyslu og vopnaburði hjá þessum hópi, aukinni tíðni ofbeldismála og slíku

„Við erum með ómerkta bíla sem eru útbúnir með radartækjum og svo verðum við með samfélagslöggæslu,“ segir Jóhannes, en í ár verður sérstök áhersla lögð á að fylgjast með yngri kynslóðinni. „Samfélagslöggæslan er forvarnarmiðuð starfsemi þar sem helst er verið að einblína á yngri hópana. Við höfum haft áhyggjur af neyslu og vopnaburði hjá þessum hópi, aukinni tíðni ofbeldismála og slíku. Við erum að reyna að beita okkur þarna og við verðum með fólk sérstaklega í þessu um helgina. Eftirlitslaus ferðalög ósjálfráða ungmenna á viðburði Bíladaga eru svo ekki við hæfi og við fylgjumst með því líka,“ segir Jóhannes að lokum.

Dagskrá og fréttir af Bíladögum má finna á Facebook síðu Bílaklúbbsins og heimasíðunni.