Fréttir
Sameiningarmáttur samfélagsins einstakur
11.11.2026 kl. 16:30
Starfsfólks Krabbameinsfélagsins á Akureyri. Eva Björg Óskarsdóttir, Jenný Valdimarsdóttir, Steingrímur Karlsson og Marta Kristín Rósudóttir og Hulda Sædís Bryngeirsdóttir.
Árlegu árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins Ísland – Bleikum október – er nýlokið. Starfsfólk og stjórn Krabbameinsfélagsins Akureyrar og nágrennis segja einstakt að sjá sameiningarmátt samfélagsins þegar átak til vakningar um krabbamein stendur yfir og hafa óskað eftir að fá birta yfirlýsingu með þökkum til samfélagsins.
Allir standa saman
„Það er einstakt að sjá sameiningarmátt samfélagsins þegar átak til vakningar um krabbamein eins og Bleikur október og Bleika slaufan standa yfir,“ segir í yfirlýsingunni. „Allir standa saman og hinir ýmsu hópar finna leiðir til að standa fyrir skemmtilegum uppákomum sem vekja athygli á þessum vágesti og afla styrkja fyrir málefnið.“
Lífið breytist á einu augnabliki þegar fólk greinist með krabbamein, segja stjórn starfsfólk KAON. Áhyggjur af heilsunni taki yfir, framtíðin verði óviss og fjölskyldan standi frammi fyrir erfiðu verkefni.
„Við hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis reynum að veita alla þá þjónustu sem hjálpað getur krabbameinssjúkum og aðstandendum þeirra. Öll þjónusta okkar er gjaldfrjáls, þökk sé okkar styrktaraðilum,“ segir í yfirlýsingunni.
„Hjá okkur starfa tveir sérhæfðir ráðgjafar á vegum Krabbameinsfélags Íslands sem veita viðtöl og ráð til krabbameinssjúkra og aðstandenda.
Í dag eru sex jafningjastuðningshópar starfandi hjá okkur sumir fyrir nýlega greinda og aðrir fyrir þá sem eru lengra komnir í ferlinu. Einnig er jafningjastuðningshópur fyrir aðstandendur. Okkar góðu og reyndu ráðgjafar leiða þessa hópa.
Við bjóðum upp á hin ýmsu námskeið í samstarfi við Sölku, sem við greiðum að fullu fyrir okkar skjólstæðinga.
Til okkar fáum við sérfræðinga með erindi um ýmislegt, svo sem krabbameinsþreytu, verki, andlega líðan, kvíða og fleira.
Þar sem margir okkar skjólstæðinga þurfa suður í meðferðir eða aðgerðir þá niðurgreiðum við sjúkrahótel og íbúðir fyrir okkar fólk.
Við styðjum við heilsueflingu okkar fólks, erum með Yoga Nidra slökunartíma, og erum að byrja með sundleikfimi í nýju glæsilegu innisundlauginni á Akureyri.
Einnig erum við með þjónustu fyrir konur sem þurfa gervibrjóst og stuðningshlífar vegna sogæðabjúgs.
Ekkert af þessari þjónustu væri hægt að veita án ykkar stuðnings, innilegar þakkir fyrir það.
Við bjóðum alla velkomna að kynna sér starfið okkar að Glerárgötu 24.“