Fara í efni
Fréttir

Safnað fyrir Bergið Headspace í Krónunni

Krónan mun standa fyrir söfnun fyrir stuðnings- og ráðgjafasetrið Bergið Headspace í verslunum sínum um allt land í dag og á morgun, fimmtudag, 28. og 29. maí. Þá býðst viðskiptavinum að gefa 500 krónur eða meira á sjálfsafgreiðslukössum og í Skannað og skundað í lokaskrefi afgreiðslu. Upphæðin rennur óskert til Bergsins sem veitir ungmennum á aldrinum 12 til 25 ára fría ráðgjöf og aðstoð með það að markmiði að bæta líðan og auka virkni þeirra í samfélaginu, segir í fréttatilkynningu frá Krónunni.

Rannsóknir og kannanir sýna að líðan ungmenna á Íslandi hefur versnað til muna á síðustu árum

Eva Rós Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins Headspace segir að ungt fólk hér á landi standi frammi fyrir fjölbreyttum áskorunum í nútíma samfélagi og því sé mikilvægt að styðja við þau til að átta sig á og takast á við eigin tilfinningar, hegðun og viðbrögð. Sama sé upp á teningnum hjá nágrannaþjóðum okkar og þurfi að grípa þessi ungmenni snemma á meðan vandinn sé enn yfirstíganlegur.

Mikil þörf á stuðningi við ungmenni á Íslandi

„Við þökkum Krónunni kærlega fyrir að standa að þessari söfnun og þeim viðskiptavinum sem kjósa að styrkja það mikilvæga starf sem fer fram í Berginu Headspace. Rannsóknir og kannanir sýna að líðan ungmenna á Íslandi hefur versnað til muna á síðustu árum. Því til stuðnings lýsa 44% grunnskólabarna depurð og 56% lýsa kvíða í Íslensku æskulýðsrannsókninni sem fram fór árið 2024 og hefur því sjaldan verið jafn mikil þörf á úrræðum, fjármagni og sérfræðiþekkingu inn í þennan veigamikla málaflokk,“ segir Eva Rós.

Í kjölfar „ísfötuáskorunar“ frá Lyfju á TikTok, til þess að vekja athygli á andlegri heilsu, var strax áhugi fyrir því að gera meira í þágu málstaðarins. Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar segist strax hafa hugsað til Bergsins Headspace enda hafa þau unnið ötullega að því að styðja ungmenni í átt að betri líðan. „Ráðgjöf og stuðningur við ungmenni hefur sjaldan verið jafn mikilvægur og nú, og við viljum leggja okkar af mörkum,“ segir Guðrún. „Með sameiginlegu átaki nýtum við tæknilausnir Krónunnar til að gera viðskiptavinum kleift að styðja við Bergið og vonum að sem flestir taki þátt í þessu mikilvæga verkefni sem hefst í öllum verslunum okkar á morgun og stendur yfir í tvo daga.“

Um Bergið Headspace

Bergið Headspace hefur frá árinu 2019 veitt ungmennum á aldrinum 12 til 25 ára ókeypis ráðgjöf án tilvísunar á höfuðborgarsvæðinu, en það er rúmt ár síðan opnað var á Akureyri. Um er að ræða svokallaða lágþröskuldaþjónustu þar sem stuðningur, ráðgjöf og fræðsla er veitt á forsendum unga fólksins. Ráðgjöfin nær til málefna eins og geðheilsu, náms, sjálfsmyndar og félagslegra tengsla. Hjá Berginu starfa sérfræðimenntaðir ráðgjafar sem veita ungu fólki stuðning og fræðslu og aðstoða með leiðir til að vinna úr vandamálum þeirra. Hér má lesa um opnun Bergsins á Akureyri í fyrra.