Fara í efni
Fréttir

Safna fyrir ungt fólk með fíknivanda á Norðurlandi

Henning Jóhannesson frá Grímsey sem lést í maí síðastliðnum aðeins 24 ára að aldri.

Hafin er fjársöfnun til minningar um Henning Jóhannesson frá Grímsey, sem lést í maí síðastliðnum aðeins 24 ára að aldri. Það eru foreldrar og aðstandendur Hennings sem standa að söfnuninni, en tilgangur hennar er að skapa og styrkja úrræði fyrir ungt fólk með fíknivanda á Norðurlandi ásamt því að styðja við aðstandendur þeirra.

„Eigin reynsla foreldra Hennings sýnir að sárlega vantar aðstoð og lausnir utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem úrræðaleysi blasir oft við þeim sem á þurfa að halda,“  segir í tilkynningu um söfnunina.

Söfnunarféð mun renna óskert í söfnunarsjóðinn Samheldni þegar hann tekur til starfa, en söfnunin í nafni Hennings er sérstaklega ætluð til að fjármagna verkefni á Norðurlandi.

„Sjóðurinn Samheldni hefur það göfuga markmið að sameina íslenskt atvinnulíf og samfélag í öflugu átaki til að bæta þjónustu og stuðning við fólk með fíknisjúkdóma og fjölskyldur þeirra,“ segir í tilkynningunni.

Foreldrar Hennings hvetja einstaklinga og fyrirtæki til að sýna samstöðu og veita söfnuninni lið í minningu hans.

  • Söfnunarreikningur: 0567 - 14 - 600426
  • Kennitala: 290767-5559