Fara í efni
Fréttir

Rúta valt – enginn slasaðist alvarlega

Mynd af Facebook síðu lögreglunnar

Enginn slasaðist alvarlega þegar rúta með 25 farþega auk ökumanns og fararstjóra fór út af Ólafsfjarðarvegi í dag og valt. Þetta gerðist skammt frá Múlagöngum, Ólafsfjarðarmegin.

Tilkynnt var um slysið laust fyrir klukkan 14.30 að því er segir á Facebook síðu lögreglunnar.

„Lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningalið var sent á vettvang. Fjöldahjálparstöð var opnuð í Menntaskólanum á Tröllaskaga, þangað sem farþegar rútunnar voru fluttir og starfsfólk Rauðakrossins hlúði að þeim,“ segir á síðunni.

Lögregla vinnur að rannsókn að tildrögum slyssins á vettvangi.