Fara í efni
Fréttir

Rauða hjartað slær á ný í túristaljósinu við Hof

Aftur er komið rafmagn á ferðamannaljósið í miðbænum. Mynd: SNÆ

Hjartaljósið sem sett var sérstaklega upp í miðbænum fyrir myndatökur fyrir ferðamenn er nú aftur farið að skína,  en ljósið hafði verið óvirkt í tæpt ár. 

Eins og akureyri.net greindi nýlega frá þá hefur verið lítið gaman fyrir ferðamenn að taka myndir við sjálfuljósið sem staðsett er milli Hofs og Torfunefsbryggju þar sem tengingin við ljósið rofnaði í fyrra þegar framkvæmdir stóðu yfir á bryggjunni.

Þessu hefur nú verið kippt í liðinn en ekki þurfti að leggja nýjan streng að ljósinu eins og upphaflega var haldið heldur aðeins laga hann á tveimur stöðum. Það er því um að gera fyrir bæjarbúa að beina ferðamönnum að þessum örugga stað fyrir myndatökur af hjartanu. 

Hjartaljósið er miðja vegu á milli Hofs og Torfunesbryggju. Mynd: SNÆ