Fréttir
Rannsóknamiðstöð um málefni innflytjenda
29.04.2026 kl. 09:00
Ásthildur Sturludótir bæjarstjóri og dr. Marya Rozonova-Smith frá George Washington háskólanum í Bandaríkjunum. Mynd: akureyri.is.
Opnuð hefur verið Rannsóknamiðstöð um málefni innflytjenda hjá Háskólanum á Akureyri, þverfagleg miðstöð sem ætlað er að efla rannsóknir á innflytjendamálum og samfélagsbreytingum í kjölfar fjölbreyttari íbúasamsetningar á landinu með það að markmiði að safna, greina og miðla þekkingu sem nýtist stjórnvöldu, sveitarfélögum, stofnunum og almenningi. Þetta kemur fram í frétt á vef Akureyrarbæjar.
Formleg opnun miðstöðvarinnar var síðastliðinn föstudag. Stofnun miðstöðvarinner er fjármögnuð úr Þróunarsjóði innflytjendamála.
Nánar er fjallað um málið á vef Akureyrarbæjar.