Fara í efni
Fréttir

Rafmagnslaust norðan Akureyrar að Hjalteyri

Skjáskot af vef Rarik

UPPFÆRT KL 20.40

Rafmagn er komið á aftur. Háspennustrengur hafði farið í sundur en viðgerð tók skamman tíma.

_ _ _

Rafmagnslaust er í Hörgársveit, frá bæjarmörkunum að Akureyri og út að Hjalteyri. Ekki er vitað um orsakir þessa en verið er að leita að bilun, að því er segir í tilkynningu frá Rarik.

Þeir sem kunna að hafa einhverjar upplýsingar sem gætu hjálpað við bilanaleit eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Svæðisvakt RARIK Norðurlandi í síma 528 9000.