Rætt um áfallastreitu í næstu samveru Píeta
Þema næstu samveru sorgarhóps Píeta samtakanna á Akureyri er áfallastreita. Samveran er næsta mánudagskvöld, 9. mars, í kapellu Akureyrarkirkju og sérstakur gestur verður Gísli Kort, áfallastreitufræðingur. Slíkir viðburðir eru haldnir annan mánudag hvers mánaðar undir haldleiðslu Hildar Eirar Bolladóttur.
„Jafningjastuðningur hefur margsannað sig þegar kemur að áföllum og sorgum lífsins,“ segir í tilkynningu frá Píeta. „Það er eitthvað sérstakt sem gerist þegar fólk deilir reynslu og treystir hvert öðru fyrir eigin hugsunum og líðan þó ekki sé nema það að þoka einsemdarinnar hverfur. Það er svo merkilegt hvað traust og samlíðan gerir mikið fyrir okkar sárustu reynslu og tilfinningar.“
Fólk er hvatt til að skrá sig á hér: https://fb.me/e/9LZw2VHFq
Einnig er hægt að fylgjast með stuðningshópum Píeta á heimasíðu samtakanna, hér: https://pieta.is/um-pieta/studningshopar/
- Í tilkynningunni er minnt á sálfræðingar samtakanna bjóða upp á viðtöl fyrir aðstandendur sem hafa misst í sjálfsvígi, í Píetaskjólum í Reykjavík, á Akureyri, Ísafirði og Reyðarfirði.
- Tímapantanir eru í gegnum hjálparsímannr 552-2218 á virkum dögum milli 9 og 15.
- Hjálparsíminn er síðan opinn allan sólahringinn, alla daga ársins fyrir þau sem þurfa á hjálp eða leiðsögn að halda.