Fara í efni
Fréttir

Ræða um afbrotavarnir, löggæslu og samfélagið

Guðmundur Ævar Oddsson er einn skipuleggjenda ráðstefnunnar - Háskólinn á Akureyri. Ljósmynd: Þorgeir Baldursson.

Ráðstefnan Löggæsla og samfélagið fer fram í fjórða sinn í Háskólanum á Akureyri á miðvikudaginn, 6. október, frá klukkan 9 til 17. Á dagskránni eru tæplega 50 erindi og hefur ráðstefnan aldrei verið umfangsmeiri. Fyrirlesarar eru um 70 og koma víða að úr heiminum. „Greinilegt er að ráðstefnan hefur skapað sér nafn í samfélaginu en hún er haldin af námsbraut í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri,“ segir í tilkynningu frá HA. 

Guðmundur Oddsson, dósent við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri og einn skipuleggjanda ráðstefnunnar, segir ráðstefnuna vettvang fyrir fagfólk og fræðimenn til að reifa málefni sem tengjast löggæslu í víðri merkingu. „Ráðstefnan er mikilvægur liður í að byggja upp lögreglufræðisamfélag hérlendis og samstarf stofnanna innan réttarvörslukerfisins og þeirra sem skara það til að treysta lögreglufræðinám á háskólastigi og sem liður í stöðugri fagvæðingu lögreglunnar,“ segir Guðmundur.

Þema ráðstefnunnar í ár er afbrotavarnir, sem vísar til aðferða og aðgerða til að draga úr afbrotum og áhrifum þeirra á samfélagið.

„Hérlendis vantar heildstæða stefnumörkun stjórnvalda í þessum málaflokki en rannsóknir sýna að ábyrgar og skipulagðar afbrotavarnir draga úr afbrotum, auka öryggiskennd íbúa og draga úr samfélagslegum kostnaði sem hlýst af afbrotum. Lögreglan leikur lykilhlutverk við afbrotavarnir sem vert er að rýna,“ segir í kynningartexta um ráðstefnuna.

Lykilfyrirlesarar eru tveir:

  • Jason Roach, prófessor í sálfræði og lögreglufræði og forstöðumaður lögreglufræðiseturs við Háskólann í Huddersfield.
  • Jerry Ratcliffe, fyrrverandi lögreglumaður í Bretlandi, prófessor og fer fyrir þekkta hlaðvarpinu „Reducing Crime“ um afbrotavarnir.

Hér má nálgast dagskrá ráðstefnunnar 

Ráðstefnugjald er 5.000 kr. og eru ráðstefnugögn og kaffiveitingar innifaldar. Gjaldið greiðist á staðnum.

Skráning er í fullum gangi en einnig er hægt að skrá sig á staðnum.