Fara í efni
Fréttir

Ráðherra með opinn fund um málefni fatlaðra

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, er á leið í hringferð um landið vegna landsáætlunar í málefnum fatlaðs fólks. Hann býður til opinna samráðsfunda víða um land og verður í Hofi á Akureyri á morgun, þriðjudag 23. maí. Fundurinn verður í Hömrum og hefst klukkan 17.00.

Á fundunum mun ráðherra flytja opnunarávarp og kynnt verða nokkur þeirra verkefna sem tilheyra landsáætluninni. Fulltrúar heildarsamtaka fatlaðs fólks fjalla um sínar áherslur og framtíðarsýn og starf notendaráða verður kynnt. Að lokum býður ráðherra til samtals við viðstadda um það sem þeim er efst í huga, að því er segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

„Málefni fatlaðs fólks koma okkur öllum við og fólk er hvatt til að mæta og taka þátt. Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun þjónustu við fatlað fólks á Íslandi,“ segir í tilkynningunni.

  • Skrá þátttöku
    Ef þörf er á táknmálstúlkun, rittúlkun eða annarri sérstakri aðstoð er mikilvægt að það komi fram við skráningu

„Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks skuli lögfestur á kjörtímabilinu. Undir lok árs í fyrra var hleypt af stokkunum umfangsmikilli vinnu við gerð landsáætlunar til að tryggja farsæla innleiðingu samningsins. Grundvallarhugmyndin er sú að fatlað fólk, hagsmunasamtök þess, ríki, sveitarfélög og almenningur vinni saman sem jafningjar að því að móta tillögur að verkefnum sem bæta stöðu fatlaðs fólks og tengjast samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.“

Nánari upplýsingar hér á vef stjórnarráðsins