Prjónamessa í Glerárkirkju
Kirkjugestir eru hvattir til þess að taka prjónana eða aðra handavinnu með í Glerárkirkjuna á sunnudag, en þá verður sérstök prjónamessa haldin í kirkjunni. Gestir eru hvattir til þess að njóta þess að láta hendurnar vinna á meðan þeir hlusta og taka þátt í messunni.
Prjónamessur hafa tvisvar áður verið haldnar í Akureyrarkirkju og einu sinni í Saurbæjarkirkju, en nú er röðin komin að Glerárkirkju. „Að prjóna er að skapa og við erum sköpuð til að halda áfram að skapa. Annað er að bænin er svolítið eins og prjónaskapur, hver lykkja er bænarefni og úr verður einhvers konar skjól. Frá mínum bæjardyrum séð ættu allir sem vilja að taka með sér prjóna í sunnudagsmessu ef þá langar, sumir hlusta líka betur á meðan þeir prjóna,“ segir séra Hildur Eir Bolladóttir, þegar hún er spurð út í þessa hefð en fyrsta prjónamessan var haldin í Akureyrarkirkju árið 2022, í samvinnu við Garn í gangi sem gaf öllum kirkjugestum prjónauppskrift.
Það er presturinn Hildur Björk sem þjónar í prjónamessunni í Glerárkirkju ásamt Kór Glerárkirkju undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur. Þá mun prjónakonan Salóme Sigurðardóttir einnig flytja hugleiðingu í messunni, en hún er hönnuðurinn á bak við garnamerkið Dóttir Dyeworks og eigandi samnefndrar handavinnuverslunar á Akureyri. Salóme segist ætla að leggja áherslu á innri frið og trú á eigin getu í sinni hugleiðingu og tengja það við það sem prjónaskapurinn getur gefið fólki.
Messan hefst klukkan 11 en að henni lokinni verður boðið upp á hádegismat í kirkjunni frá kl. 11:30 fyrir fjölskyldur sem eru á leið í Krakkakirkju og messugestir bætast svo í hópinn að prjónamessu lokinni. Kl. 12 er svo Englakrakkakirkja þar sem sögur, söngur og föndur verða á boðstólum.