Prestar og djáknar fjölmennir í bænum
Presta- og djáknastefna var sett við messu í Akureyrarkirkju síðdegis í dag, þriðjudag, og stendur til fimmtudags. Biskup Íslands kallar presta og djákna til fundar við sig árlega, og hefur gert um langt árabil, þar sem hópurinn hittist til skrafs og ráðagerða. Stefnan er haldin til skiptis á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.
Um 150 prestar og djáknar sækja stefnuna og hófst hún að vanda með prósessíu, sem svo er kölluð; göngu hópsins þar sem raðað er eftir vígslualdri; þeir yngstu ganga fremst en þeir með lengstan starfsaldur aftast, ásamt þeim sem þjóna við messuna, vígslubiskupum og biskupi Íslands.
Hópurinn kom saman í Menntaskólanum á Akureyri í dag og gekk þaðan niður í Akureyrarkirkju. Fremst fór krossberi, Bryndís Björg Þórhallsdóttir djákni í Akureyrarkirkju.
Hildur Eir Bolladóttir, sóknarpestur í Akureyrarkirkju prédikaði við messuna í dag. Séra Aðalsteinn Þorvaldsson þjónaði fyrir prédikun og séra Jóhann Gísladóttir eftir prédikun.
Á stefnu sem þessari eru jafnan ýmis málefni rædd en prestarnir leggja líka áhersu á að skemmta sér, eins og einn þeirra sagði akureyri.net í dag. Margir í hópnum þekkjast en stéttin er dreifð um landið, eðli málsins samkvæmt, og því finnst mönnum mikilvægt að geta hist við tækifæri sem þetta.
Í kvöld hittist hópurinn til dæmis á Græna hattinum á samkomu sem kallast Bjór og sálmar; slík hefur verið haldin undanfarin ár og notið vinsælda. Þar eru sungnir sálmar, alltaf er tilbúinn listi en líka er hægt að biðja um óskalög. „Við segjumst stundum vera að kalla lottótölurnar!“ segir viðmælandinn. Þá nefnir einhver númer sálms í sálmabókinni og hann er sunginn.

Bryndís Björg Þórhallsdóttir, krossberi í dag, fremst í flokki í MA í dag; á Langa gangi Gamla skóla áður en prósessían hófst.




