Fara í efni
Fréttir

Peysutog í handbolta? Hvaða peysutog?

Aðalsteinn Bergþórsson í þann mund að skora fyrir Þór í sigrinum á Fjölni í Höllinni í gærkvöldi. Jóhanni Einarssyni, samherja hans, virðist skemmt yfir áhuga Fjölnismannsins á að klæða línumanninn úr keppnistreyjunni! Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Ljósmyndarar ná oft að fanga skemmtileg augnablik, hvort sem er í íþróttum eða annars staðar. Sá sem þetta skrifar rakst á tvö dæmi í myndavélinni eftir handboltaleiki á síðustu dögum.

Sú fyrri vakti mikla athygli, af Arnóri Ísaki Haddssyni, leikmanni KA, þar sem hann skoraði í sigri á Aftureldingu í KA-heimilinu. Einn mótherjanna virtist ásælast mjög treyju KA-mannsins en atvikið er vitaskuld gott dæmi um svokallað peysutog, sem er bannað í þessari skemmtilegu íþrótt. Samskonar atvik átti sér stað í gærkvöldi þegar Þórsarar sigruðu Fjölnismenn í Íþróttahöllinni. Aðalsteinn Bergþórsson fékk ámóta móttökur þar sem hann fékk boltann og sveif inn af línunni. Sjón er sögu ríkari.

Arnór Ísak Haddsson KA-maður í leiknum gegn Aftureldingu. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.