Penninn á Akureyri heldur upp á kvartöld

Penninn á Akureyri fagnar 25 ára afmæli í dag, 12. júní. Á þessum degi árið 2000 keypti Penninn verslunina Bókval sem var í húsnæðinu sögufræga við Hafnarstræti 91-93 og hóf starfsemi. Seinna sameinaðist fyrirtækið Eymundsson og í dag heitir verslunin Penninn-Eymundsson og er rótgróin í miðbæ Akureyrar. Guðný Ketilsdóttir er búin að vera verslunarstjóri Pennans-Eymundsson í miðbænum í 8 ár, en hún var hress með tímamótin þegar blaðamaður Akureyri.net hitti hana í húsgagnadeildinni.
Minnir stundum á Kaupfélagið
„Ég segi stundum, sem mér finnst skemmtilegt, að það er næstum því eins og við séum orðin eins og kaupfélag,“ segir Guðný. „Vöruúrvalið er orðið svo fjölbreytt, allt frá blýöntum og strokleðrum upp í teppi, baðsloppa og svo húsgögn og allt þarna á milli. Það er gaman að hugsa til þess, þar sem að þetta húsnæði er náttúrulega sögufrægt fyrir að hýsa Kaupfélag Eyfirðinga áður fyrr.“
„Verslunin er á þremur hæðum, í kjallaranum erum við með skólavörur og töskur af ýmsu tagi,“ segir Guðný. „Svo eru ritföngin, myndlistavörur og ferðamannavörur á jarðhæðinni, bókadeildin og kaffihúsið í suðurendanum og svo húsgögn og skrifstofuhúsgögn á efri hæðinni. Það er hægt að finna eitthvað handa öllum hérna!“
Guðný Ketilsdóttir, verslunarstjóri. Mynd: RH
í tilefni af afmælinu er 25% afsláttur af öllu. Við getum farið að hlakka til þegar Penninn á Akureyri verður fimmtugur! Mynd: RH
Leggja upp úr notalegri stemningu
„Við fáum fjölmarga gesti á hverjum degi og við leggjum mikið upp úr því að hafa huggulega stemningu í versluninni,“ segir Guðný. „Við viljum að fólk geti rölt um í rólegheitum, skoðað vörunar, fengið sér kaffibolla, gluggað í blað og notið heimsóknarinnar. Nýlega komu nýjir rekstraraðilar með kaffihús hingað inn, en Kaffi LYST er að fara mjög vel af stað og við erum mjög ánægð með stemninguna. Við viljum að verslunin sé heimilisleg.“
Það er ekki óalgengt að sjá fjölskyldufólk bæjarins tylla sér með bolla um helgar eða eftir vinnu, þar sem börnin geta skoðað bækurnar og leikið sér í bókabílnum. „Það er svo skemmtilegt andrúmsloft sem fylgir kaffihúsinu,“ segir Guðný. „Þetta er í held ég orðin eina Penna-verslun landsins fyrir utan Austurstræti í miðborg Reykjavíkur, sem er með kaffihús á staðnum.“
Kaffi LYST hefur opnað í Pennanum. Mynd: RH
Ýmislegt hefur breyst
„Það hefur ýmislegt breyst á þessum tíma sem verslunin hefur verið hérna,“ segir Guðný, en þó hún hafi ekki verið verslunarstjóri allan þennan tíma hefur hún tilfinningu fyrir þróun síðustu 25 ára. „Skólavertíðirnar eru til dæmis ekki eins og þær voru. Það er minni sala í skrifstofuvörum, pappírsnotkun er minni. Bóksala hefur haldist nokkuð svipuð síðan ég byrjaði en mér finnst líklegt að hún hafi verið stærri hluti af heildinni áður. Ferðamannavaran er alltaf að stækka, bara síðan ég byrjaði fyrir átta árum finnum við mikinn mun í takt við fleiri ferðamenn.“
„Það er gaman að sjá, á sumrin, hvað miðbærinn iðar af lífi,“ segir Guðný, en straumur fólks inn í verslunina helst í hendur við það. „Við köllum það skipagleði, þegar skemmtiferðarskipin byrja að koma í upphafi sumars, svo hefur lokun göngugötunnar góð áhrif finnst mér, og viðskiptavinir okkar hafa orð á því, hvað gatan er lifandi og skemmtileg,“ segir Guðný Ketilsdóttir að lokum.
Guðný hefur orð á því, að það sé skemmtilegt hvað Penninn er farinn að nálgast það að vera eins og Kaupfélag vegna breiðs vöruúrvals. Ennþá stendur KEA í gluggum hússins, sem minnir á gamla daga Kaupfélags Eyfirðinga í Hafnarstræti 91-93. Mynd: RH