Fara í efni
Fréttir

Parki Interiors opnar verslun á Akureyri

Myndir: Florian Hofer

Parki Interiors, sem lengi hefur rekið stóra verslun við Dalveg í Kópavogi, opnaði í dag nýja verslun við Sjafnargötu 1b á Akureyri.

„Parki býður viðskiptavinum upp á vandaða og faglega ráðgjöf um allt sem lýtur að innréttingum híbýla, fyrirtækja og stofnana, auk framúrskarandi vara og þjónustu á sanngjörnu verði. Í nýjum sýningarsal á Akureyri má meðal annars finna parket, flísar, innihurðir, gólfteppi, dúkaloft, kerfisloft og vandaðar innréttingar, auk ýmissa annarra lausna. Í raun allt sem þarf til að skapa falleg og vönduð rými,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Við erum afar spennt fyrir því að geta þjónustað viðskiptavini okkar úti á landi enn betur. Við finnum fyrir mikilli þörf og eftirvæntingu á Eyjafjarðarsvæðinu og víðar fyrir norðan og austan,“ er haft eftir Gústaf B. Ólafssyni, framkvæmdastjóra Parka, í tilkynningunni. Í ljósi mikillar spurnar eftir breiðara vöruúrvali og þjónustu nær viðskiptavinum á Norðausturlandi sé opnun verslunar á Akureyri því eðlilegt næsta skref í uppbyggingu þjónustu á landsbyggðinni.

Gunnar Björgvin Arason, verslunarstjóri Parka á Akureyri, segir opnunina vera mikilvægt skref fyrir fyrirtækið og viðskiptavini á svæðinu. „Það er virkilega ánægjulegt að fá að opna Parka á Akureyri og geta boðið fólki á svæðinu upp á fjölbreytt úrval, faglega ráðgjöf og persónulega þjónustu á einum stað. Við hlökkum mikið til að taka á móti bæði nýjum og núverandi viðskiptavinum og hjálpa þeim að finna réttu heildarlausnirnar fyrir heimili sín, fyrirtæki og önnur rými,“ segir Gunnar.

Parki er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Íslandi, að því er segir í tilkynningunni, „og hefur á undanförnum árum byggt upp öflugt vöruúrval og sérþekkingu á sviði innréttinga og hönnunar. Með nýrri verslun á Akureyri styrkir fyrirtækið enn frekar þjónustu sína við viðskiptavini um allt land.“