Fara í efni
Fréttir

Óvissustigi lýst yfir vegna norðanáhlaups

Ríkislögreglustjóri hefur, í samráði við lögreglustjórana á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi, lýst yfir óvissustigi Almannavarna frá og með kl. 18:00 í kvöld, mánudaginn 2. júní, vegna norðanáhlaups sem spáð er næsta sólarhringinn. 

Á vef Almannavarna segir:

  • Spáð er norðan hvassviðri með hvössum vindhviðum, sem getur skapað hættulegar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig vind.
  • Á ákveðnum svæðum er einnig búist við snjókomu og skafrenningi, sem getur valdið verulega skertum akstursskilyrðum og samgöngutruflunum, einkum á fjallvegum.
  • Ökutæki sem ekki eru búin til vetraraksturs geta átt í erfiðleikum við þessar aðstæður, og því er ekki ráðlegt að leggja í ferðalög til fjalla á meðan veðrið gengur yfir. Þá má einnig búast við vatnavöxtum og skriðuföllun á norðanverðu landinu.

Almannavarnir hvetja ferðafólk og almenning að:

  • Fylgjast vel með veðurspám og viðvörunum á vef Veðurstofu Íslands: www.vedur.is
  • Skoða færð og aðstæður á vegum á vef Vegagerðarinnar: www.umferdin.is
  • Tryggja lausamuni sem geta fokið og valdið tjóni
  • Gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja öryggi sitt og annarra

Almannavarnir hvetja einnig almenning og ferðaþjónustuaðila til að aðstoða við að upplýsa erlent ferðafólk um veðrið sem framundan er, og tryggja að viðeigandi ráðstafanir séu gerðar til að tryggja öryggi þess.

Spá Veðurstofu Íslands fyrir Norðurland eystra er svohljóðandi:

Frá klukkan 18:00 í dag mánudag þar til kl. 3:00 í nótt:

  • Norðan 8-13 metrar á sekúndu og slydda eða snjókoma til fjalla með hálku á vegum og versnandi akstursskilyrðum, og einnig á láglendi undir kvöld. Varasamar aðstæður fyrir ökutæki vanbúin til vetraraksturs.

Frá klukkan 3:00 í nótt til kl. 13:00 á morgun:

  • Norðan 13-20 metrar á sekúndu og snjókoma og skafrenningur. Búast má við versnandi akstursskilyrðum með samgöngutruflunum. Varasamar aðstæður fyrir ökutæki vanbúin til vetraraksturs og ekki ráðlegt að leggja í ferðalög til fjalla.