Fara í efni
Fréttir

Óttuðust um líf sitt í sprengjuregninu

Óliver Breki, Aron Einar Gunnarsson, Tristan Þór, Alexander og Kristbjörg Jónasdóttir. Mynd:@krisfitness

Kristbjörg Jónasdóttir athafnakona sem búsett er í Katar við Persaflóa segir í samtali við mbl.is að fjölskyldan hafi óttast um líf sitt í sprengjuárásum Írana á laugardag. Eiginmaður Kristbjargar, Akureyringurinn Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, starfar sem knattspyrnumaður hjá Al Gharafa í Katar þar sem hjónin eru búsett ásamt sonunum Óliver Breka, Tristan Þór og Alexander.

Bandaríkin og Ísrael hófu loftárásir á Íran á laugardag og Íranir svöruðu með því að skjóta eldflaugum á nágrannaríki, m.a. Katar.

„Já, á laugardagsnóttina þá var ég virkilega hrædd,“ segir Kristbjörg, spurð hvort á einhverjum tímapunkti hafi þau óttast um líf sitt. „Það var svo mikið um sprengingar þá og þó að við séum öll meðvituð um það að það sé ekki verið að miða á íbúðabyggð í Katar þá veit maður aldrei hvað getur gerst. Það gæti alveg dottið ein sprengja á húsið okkar upp úr þurru og maður hafði mestar áhyggjur af því.“ 

Kristbjörg segir að Aron hafi farið á æfingu með liðinu í vikunni, leikur var fyrirhugaður á morgun en nú hefur verið tilkynnt að á heimasíðu knattspyrnusambands Katar að öllum leikjum hafi verið frestað um óákveðinn tíma vegna ástandsins. 

Frétt mbl.is: Óttuðust um líf sitt í sprengjuregninu í Katar