Fara í efni
Fréttir

Ottó Elíasson nýr framkvæmdastjóri Eims

Ottó Elíasson: „Það eru mikil færi á því að gera betur hér á landi þegar kemur að umhverfis-, loftslags- og auðlindamálum.“

Dr. Ottó Elíasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Eimi. Ottó hóf störf hjá Eimi sumarið 2020 og tók við sem rannsókna- og þróunarstjóri í september það ár, að því er fram kemur í tilkynningu. Hann hefur leitt sókn í innlenda og erlenda styrktarsjóði og tekið þátt í innlendum og erlendum rannsókna- og þróunarverkefnum.

Eimur er samstarfsverkefni um bætta nýtingu auðlinda og aukna græna nýsköpun á Norðurlandi eystra. Að verkefninu standa Landsvirkjun, Norðurorka, Orkuveita Húsavíkur, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

Mikil færi á að gera betur

„Það eru mikil færi á því að gera betur hér á landi þegar kemur að umhverfis-, loftslags- og auðlindamálum. Eimur er kjörinn vettvangur til að hafa mikil áhrif á þessa málaflokka og ég er viss um að við getum hraðað orkuskiptum og innleiðingu hringrásarhagkerfis, sérstaklega með þátttöku í alþjóðlegum samstarfsverkefnum,“ segir Ottó meðal annars í tilkynningu um ráðninguna.

„Ottó hefur sýnt af sér mikla fagmennsku og hæfni í þeim störfum sem hann hefur sinnt innan Eims síðastliðin ár og því er mikil ánægja að fá hann til að leiða Eim áfram í komandi verkefnum. Sérstök áhersla verður lögð á sókn í Evrópusjóði á næstu þremur árum og stjórn Eims telur Ottó hafa gríðarlega góða innsýn og lausnamiðaða nálgun sem mun koma verkefninu vel á næstu árum og tryggja áframhaldandi vöxt og rekstrargrundvöll Eims,“ segir Kjartan Ingvarsson stjórnarformaður.

Ottó hefur störf sem framkvæmdastjóri þann 15. október næstkomandi. Starfið var auglýst 24. ágúst og 14 sóttu um.